Vignir Vatnar fer fyrir KR-ingum sem eru efstir. Hér tefla þeir við Víkinga sem ritstjórn telur líklegasta. Mynd: Ríkharður Sveinsson.

Mikil spenna er á Íslandsmóti taflfélaga í atskák þegar mótið er rétt rúmlega hálfnað. Keppnin að þessu sinni virðist ætla að verða mjög jöfn og spennandi.

Fyrirfram hefði mátt búast við baráttu á milli Víkingsklúbbins, Taflfélags Reykjavíkur og núverandi meistara í Breiðablik. Atskákfyrirkomulagið virðist hinsvegar bjóða upp á miklar sviptingar og sveiflur og sú varð raunin á fyrsta degi.

Mótið er vel sótt. Mynd: RS

Skákdeild KR er óvænt í efsta sæti eftir fimm umferðir af níu. Ljóst er þó að mikið er eftir að mótinu og mótið er gríðarlega jafnt. Forysta sveitar KR er helst tilkomin af 6-0 sigri á b-sveit Breiðabliks og þar sem vinningar telja telur sá sigur ansi mikið. Forysta KR er aðeins hálfur vinningur og þar fyrir neðan er aðeins 1,5 vinningur í næstu lið. Ef við er bætt að KR á eftir að mæta TR-a, Breiðablik og Fjölni verður að teljast líklegt að erfitt sé að spá um hvar titillinn lendir.

Ritstjórn Skak.is ætlar þó að gerast svo djörf að spá Víkingaklúbbnum sigri þar sem þeir hafa teflt við flestar af bestu sveitunum og haft betur gegn þeim öllum. Hafa ber þó í huga að 24 vinningar eru í boði og enn getur allt gerst!

Mótið á Chess-Results

- Auglýsing -