Frá opnunarhátíð mótsins. Mynd: ECU/Mark Livshitz

EM landsliða hefst kl. 14 í dag. Mótið fer fram í Budva í Svartfjallalandi.

Alls taka þátt 38 lið í opnum flokki og 32 í kvennaflokki. Íslenskum liðunum er fyrirfram raðað í 29. og 27. í styrkleikaröð liðanna. EM er miklu harðara dæmi en  Ólympíuskámótið. Afar fá veik lið. Sjálfur Magnús Carlsen teflir á EM. Í fyrsta skipti síðan í Laugardalshöll árið 2015.

Magnús mætti á setningu mótsins. Mynd: ECU/Mark Livshitz

Liðið í opnum flokki mætir liði Serba. Hannes Hlífar hvílir í dag. Vignir og Hilmir tefla í fyrsta skipti fyrir Íslands hönd með a-liði.

Liðið í kvennaflokki mætir liði Sviss. Liss Acevedo Mendez hvílir. Olga Prudnykova teflir sína fyrstu skák fyrir Íslands hönd. Svisslendingar hvíla sjálfa skákdrottninguna, Alexöndru Kosteniuk á móti Íslendingum.

- Auglýsing -