Gauti Páll að tafli í Kragerö: Mynd: Facebook-síða mótsins.

UM ungmenna (u14-u18) fer fram í Montesilvano á Ítalíu dagana 13.-24. nóvember. Hvorki meira né minna en 12 íslensk ungmenni taka þátt. Fram að móti verða íslensku fulltrúarnir kynntir til leiks – 3-4 á dag!

Nú er kynntur til leiks Gauti Páll Jónsson, annar fararstjóri/þjálfari hópsins.

HM-fararnir

Nafn

Gauti Páll Jónsson.https://skak.is/2023/11/11/hm-farinn-gauti-pall-fornadi-hrok-a-f7/

Flokkur?

Fararstjóri / þjálfari ásamt Birni Ívari

 

Hver kenndi þér að tefla og hvað varstu gamall/gömul

Pabbi kenndi mér mannganginn þegar ég var um 7 ára gamall. 8 ára gamall fór ég að sækja æfingar hjá Hróknum og síðar TR.

 

Uppáhaldsskákmaður?

Jóhann Hjartarson. Náði gríðarlega langt sem skákmaður, er með fjölbreyttan og skemmtilegan skákstíl og hefur ánægju af því að tefla.


Hvernig er þínum undirbúningi háttað fyrir HM ungmenna?

Vona að kaupæði mitt á chessable komi þátttakendum að gagni. Ég geri alltaf eitthvað skáktengt á hverjum degi ásamt hreyfingu.


Besta skákin 

Mér hefur alltaf þótt vænt um skák mína á WOW air mótinu 2014 gegn Sverri Erni Björnssyni. Helgi Ólafsson birti þá skák í Morgunblaðinu ásamt skýringum. Þematísk hróksfórn á f7 í Sikileyjavörn þar sem hrókurinn sem lúrir á a3 bætist líka við sóknina, þetta fannst mér skemmtilegt.

Grein Helga

Hver eru þín markmið á mótinu?

Tapa ekki skák.

Eitthvað að lokum?

Heyri miklir hæfileikamenn um ferlið

Þá fylgja þeir því eftir í verki

Heyri miðlungsmenn um ferlið

Þá halda þeir sér ýmist við það eða glata því

Heyri aular um ferlið

Þá fá þeir hláturskast

Ef þeir hlægju ekki

Þá stæði ferlið ekki undir nafni

Lao Tze

- Auglýsing -