Mjór er mikils vísir. Um þessar mundir eru liðin 25 ár frá því að þeir Heiðar Þórðarson, Lárus Johnsen og Sigurður Pálsson, gengust fyrir því haustið 1997 að mynda hóp eldri skákmanna með það að markmiði að hittast vikulega til að tefla sér til ánægju og yndisauka. Allir voru þessir frumkvöðlar valinkunnir skákmenn, komnir á eftirlaunaaldur og vantaði góða reglubundna afþreyingu frá hausti til vors til að reyna með sér á hvítum reitum og svörtum.
Skákhópurinn fékk inni í GLÆSIBÆ þar sem nú er veitingastaðurinn ÖLVER. Fljótlega upp úr aldamótum flutti klúbburinn aðsetur sitt í ÁSGARÐ, félagsheimili FEB í Stangarhyl 4.

Sigurður Pálsson stjórnaði mótunum fyrstu tvö árin eða þangað til Birgir Sigurðsson tók við af honum sem formaður og mótsstjóri þegar fjölga tók í hópnum. Hann var þaulvanur skákstjóri úr TR sem fór létt með að para menn saman í mótum handvirkt með Monrad- spjöldum. Birgir átti svo eftir að leiða starfið ásamt Sigurði og Finni Kr. Finnssyni sem gjaldkera, Þorsteini Guðlaugssyni og fleiri góðum mönnum næstu 13 árin, til 2012, þegar Þorsteinn tók við af honum. Við skyndilegt fráfall hans 2014 tók svo núverandi formaður Garðar V. Guðmundsson tók við keflinu. Með honum í stjórn auk Finns, hafa lengst af verið þeir Jónas Ástráðsson og Viðar Arthúrsson, sem nú hafa hægt ferðina. Guðfinnur R. Kjartansson er nú einn af burðarásum klúbbsins, sem gjaldkeri og mótsstjóri, ásamt Garðari formanni, Finni og Geir Rögnvaldssyni.
Fyrir tæpum áratug tók skákdeildin upp heitið ÆSIR, að tillögu Þorsteins Guðlaugssonar, stjórnar- og ásatrúarmanns. Segja má að það fari einkar vel á því enda ganga hinir öldnu seggir til eitilharðra skákskylminga í Ásgarði frá hausti til vors. Þar er enginn annars bróðir í leik og hart barist og varist. Allir skilja þó sáttir eins og Æsir forðum, tilbúnir til nýrra skákleikja að viku liðinni. En góður félagsskapur hefur líka sitt að segja meðan aldurinn færist enn frekar yfir þá og aðra. Komnir til „að „tefla sér til hugarhægðar en hvorki til lofs né frægðar“! Svo er líka haft fyrir satt að það sé holt að iðka hugarleikfimi, heilabrot séu heilsubót vel til þess fallin að halda andlegri heilsu óskertri sem lengst.
Eins og gefur að skilja á stöðug endurnýjun sér stað í hópi eldri borgara. Þessu hefur skákdeildin ekki farið varhluta af á liðnum mörgum árum. Yfir 40 gegnir og eftirminnilegir félagar hafa fallið í valinn í tímans rás og aðrir helst úr lestinni. Yngri skákáhugamenn hafa fyllt skörðin eftir því sem þeir ná aldri og þroska til. Góður gangur hefur verið í starfseminni alla tíð, mörg mót haldin og upp á ýmsu bryddað, enda þátttaka góð, á bilinu 20-30 aldnir félagar mættir til tafls í vikulegum þriðjudagsmótum klúbbsins. Aldarfjórðungsafmælinu var fagnað með glæsilegu afmælismóti.og veiðslufagnaði í gær,













