Áttunda keppnisdegi HM ungmenna í skák í Montesilvano á Ítalíu lauk fyrr í dag.

12 Íslendingar taka þátt og eru þeir í eftirfarandi fimm flokkum:

Opinn flokkur U18
FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson
Benedikt Briem
Benedikt Þórisson
Þorsteinn Jakob F Þorsteinsson

Opinn flokkur U16
Ingvar Wu Skarphéðinsson
Adam Omarsson

Stúlnkaflokkur U16
Iðunn Helgadóttir

Opinn flokkur U14
Mikael Bjarki Heiðarsson
Matthías Björgvin Kjartansson
Markús Orri Jóhannsson
Markús Orri Óskarsson

Stúlnkaflokkur U14
Guðrún Fanney Briem

Fararstjórar og þjálfarar í ferðinni eru þeir FT Björn Ívar Karlsson og Gauti Páll Jónsson.

Þjálfarar hópsins höfðu haft það á orði fyrir mótið að 8. umferð gæti orðið krítískur punktur. Nú fara keppendur að finna fyrir þreytu og þá reynir á úthald og baráttuþrek. Íslenski hópurinn skellti sér í Botvinnik-göngu í hádeginu og stuttu síðar fór að hellirigna. Það var eins og veðurguðirnir væru að senda okkur baráttustrauma beint frá Íslandi.
Hvort gangan eða veðrið hafði áhrif verður ósagt látið en allavega gaf íslenski hópurinn fá færi á sér og af tólf skákum töpuðust einungis tvær skákir í dag.

Úrslit 8. umferðar

Opinn flokkur U18

FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson hafði hvítt á Danann CM Loftgaard. Upp kom katalónsk byrjun og staðan var í jafnvægi framan af. Daninn hafði biskupaparið og reyndi að sækja á kóngsvæng en Aleksandr var fastur fyrir og varðist af þolinmæði. Þegar færi gafst nýtti hann tækifæri sín og fékk sterk miðborðspeð. Af mikilli seiglu náði hann að innsigla sigurinn í endatafli. Skákin er einkennandi fyrir skákstíl Aleksandr sem hefur af gárungunum verið uppnefndur Mr. Patience, eða herra Þolinmæði.

Benedikt Briem hafði hvítt gegn FM Goroskhov frá Slóveníu. Upp kom Bogo-indversk vörn sem síðar var að hálfgerðum katalónskum drottningar-indverja. Benedikt fékk ágæta stöðu eftir byrjunina en Goroshkov tefldi mjög aggresíft og sótti fram á kóngsvæng. Líklega hefði Benedikt betur tekið fastar á móti því svartur fékk full mikil færi. Hvíta kóngsstaðan varð veik og Benedikt réð ekki við sókn svarts og tapaði.

Benedikt Þórisson hafði hvítt gegn CM Vaupot frá Slóveníu. Upp kom ítalskur leikur og Benedikt fór í miklar sóknaraðgerðir á kóngsvæng. Staðan varð mjög spennandi því svartur þurfti að feta hálfgert einstigi til þess að halda sér inni í skákinni. Þegar Benedikt hafði lagt allt undir í sókninni fann hann ekkert rakið framhald og keppendur þráléku og sömdu um jafntefli. Eftir skákina gátu tölvurnar bent okkur á vænlega leið fyrir Benedikt sem hefði leitt til vinnings með bestu taflmennsku.

Þorsteinn Jakob F Þorsteinsson hafði svart gegn De Maupeo frá Nýja Sjálandi. Upp kom Caro-kann vörn. Eftir harða og langa baráttu varð Þorsteinn Jakob að láta í minni pokann. Þorsteinn Jakob hefur ekki fundið sig á mótinu til þessa en enn eru eftir þrjár umferðir og hann á vonandi eitthvað inni.

Opinn flokkur U16

Ingvar Wu Skarphéðinsson hafði hvítt gegn heimamanninum FM Andreev. Upp kom katalónsk byrjun og Ingvar fékk töluvert betra tafl eftir byrjunina. Mikil pressa var á stöðu svarts sem átti erfitt með að ljúka liðsskipan sinni. Ingvar lék einum ónákvæmum leik og hleypti Andreev inn í skákina. Svartur gaf drottningu fyrir tvo hróka en Ingvar hafði í staðinn þrjú peð á kóngsvæng sem hefðu getað orðið ógnandi. Í flókinni og óræðri stöðu þráléku keppendur og sömdu um jafntefli en eftir á að hyggja hefði Ingvar átt að tefla áfram því staða hans var vænleg.

Adam Omarsson hafði svart gegn heimamanninum Gola sem tefldi ensku árásina gegn Najdorf afbrigði Adams. Í þekktri stöðu í byrjuninni drap Adam peð með hrók sem best hefði verið að drepa með biskup. Í framhaldinu fékk sá ítalski góða stöðu en Adam varðist af hörku. Hann komst út í hróksendatafl, peði undir, og náði að halda jafntefli.

Stúlnkaflokkur U16

Iðunn Helgadóttir hafði svart á ítölsku skákkonuna Boaron og fékk upp Taimanov afbrigðið í Sikileyjavörn. Andstæðingur hennar valdi afbrigði sem Iðunn hafði skoðað vel fyrir skákina. Iðunn hafði góð tök á svörtu reitunum en hvítur hafði meira rými. Eftir að hafa leikið ónákvæmum leik gaf sú ítalska Iðunni kost á hagstæðum uppskiptum og hún komst út í mjög vænlegt miðtafl. Goaron hafði veik peð og réð illa við að valda þau. Iðunn fór að ráðum Dr. Kristjáns Guðmundssonar, sem segir að komi svartur órækum riddara á e5 í Sikileyjarvörn þá geti hann ekki tapað. Iðunn gerði gott betur en það og saumaði að þeirri ítölsku sem varð að endingu að leggja niður vopn. Vel útfærð skák og Iðunn hefur unnið þrjár skákir í röð og verður í beinni útsendingu í næstu umferð.

Opinn flokkur U14

Mikael Bjarki Heiðarsson hafði svart gegn Amankos frá Kasakstan. Upp kom Najdorf afbrigði Sikileyjarvarnar og Amankos tefldi ensku árásina. Mikael hafði skoðað afbrigði fyrir skákina þar sem svartur leikur snemma h5 og stoppar sókn hvíts en teflir í framhaldinu upp á tök á svörtu reitunum. Andstæðingur Mikaels virtist ekki alveg vita hvað hann átti að gera eftir að h-peðið sagði stopp við kóngssóknina og hvítur missti tökin á drottningarvængnum. Mikael vann peð og síðar hrundi staða hans eftir að Mikael leppaði liðsafla hvíts. Skák Mikaels fylgir hér en á hana vantar endann sem bætt verður við á morgun.

Matthías Björgvin Kjartansson hafði svart Kanadamanninn Lin. Upp kom skoskur leikur og keppendur fylgdu þekktum leiðum langt fram í miðtafl. Kanadamaðurinn hafði ívið betra tafl en Matthías var fastur fyrir og fann alltaf bestu varnarleiðina. Á einum tímapunkti þurftu báðir keppendur að feta sig í gegnum mjög flókna útreikninga sem leiddi til jafns endatafls. Matthías átti á einum tímapunkti tækifæri til þess að pressa örlítið á Kanadamanninn en að lokum sættust keppendur á jafntefli eftir harða baráttu. Mikil gæðaskák sem var vel tefld af báðum keppendum.

Markús Orri Jóhannsson hafði hvítt gegn Yang frá Tævan. Upp kom Sikileyjarvörn og Yang náði hagstæðum uppskiptum á hvítreita biskup hvíts fyrir riddara. Staða Markúsar varð víðsjárverð en hann varðist af hörku og hélt jafntefli.

Markús Orri Óskarsson hafði hvítt gegn Jirovajvanichakorn frá Tælandi. Upp kom slavnesk vörn og Markús drap á d5 og hlóð þungu mönnunum á c-línuna. Með réttri taflmennsku er það bara hvítur sem getur pressað til vinnings í svona stöðun. Markús gerði allt rétt og setti þunga pressu á þann tælenska sem varðist af hörku. Upp kom riddaraendatafl þar sem Markús hafði valdað frípeð en varnir Jiro héldu og jafntefli samið. Markús hefur verið að tefla mjög vel á mótinu og á nokkra vinninga inni að okkar mati.

Stúlnkaflokkur U14

Guðrún Fanney Briem hafði hvítt gegn Abou frá Líbanon. Andstæðingur Guðrúnar vildi greinilega forðast Lundúnakerfið og fórnaði peði strax í byrjun með 1. … e5. Guðrún Fanney hirti peðið og lauk liðsskipan sinni á traustan hátt. Andstæðingur hennar fékk skjóta liðsskipan en ekki nægjanleg sóknarfæri. Eftir að Guðrún Fanney lék ónákvæmum leik í miðtaflinu lifnaði yfir sóknarfærum Abou og Guðrún Fanney lagðist í vörn. Hún var skiptamun undir en með talsverða pressu á kóngsstöðu Abou. Í stöðu sem líklega er unnin á svartan þráléku keppendur og Abou spurði strax ,,how can I win this?“.

Guðrún Fanney kennir albönskum krökkum Sistema di Londra. Mynd: JDS
Markús Orri Jóhannsson og Gauti Páll sundurgreina skák Markúsar. Mynd: JDS
Pörun 9. umferðar

Fjórir íslenskir keppendur verða í beinni í 9. umferð á morgun, þau Aleksandr, Benedikt Briem, Matthías Björgvin og Iðunn. Aleksandr er efstur íslensku keppendanna með 5,5 v. af 8 mögulegum í 11.-20. sæti.

Opinn U18
Opinn U16
Stúlkur U16
Opinn U14
Stúlkur U14
chess.com
chess24

Opinn flokkur U18 á chess-results
Opinn flokkur U16 á chess-results
Stúlknaflokkur U16 á chess-results
Opinn flokkur U14 á chess-results
Stúlknaflokkur U14 á chess-results

Heimasíða mótsins

- Auglýsing -