Heimsmeistaramóti ungmenna er nú lokið í Montesilvano á Ítalíu. Lokaumferðin hófst eldsnemma eða klukkan 09:30 að staðartíma og mögulega hefur sá tími farið eitthvað illa í íslenska hópinn því umferðin varð sú versta á öllu mótinu. Ekki ein einasta vinningsskák datt í hús!

Opinn flokkur U18
FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson var efstur Íslendinga með 7 vinninga af 10 og í 10. sæti. Sigur í lokaumferðini hefði því augljóslega fært Aleksandr ofar í topp 10 en raunin varð önnur að þessu sinni.
Aleksandr hafði hvítt á sænska skákmanninn William Olsson (2372) og tefldi Aleksandr mjög hressilega með hvítu mönnunum, Vínarbragð og kóngur hvíts kominn snemma á e2 reitinn!
Slíkt ferðalag með kónginn hefur verið þekkt frá tímum Steinitz í kóngsbragði og hvítur vinnur tíma til baka á svörtu drottninguna og hefur sterkt miðborð. Segja má að grunnurinn af framhaldi skákarinnar hafi verið lagður strax í 10. leik
Hér stendur Aleksandr nokkuð vel og ef hann hefur hemil á mótspili svarts og kemur kóngnum í gott skjól stendur hvítur mjög vel. 10.h3! hefði verið sterkur leikur hér og tölvurnar gefa hvítum +1 og telja stöðuna góða með því að fylgja eftir með framrás d-peðsins til d5. Byrjunarplan Aleksandrs hafði í raun heppnast, hann hafði hér 1:26 á klukkunni en Svíinn var að detta undir að eiga klukkutíma.
10.Bd3? reyndist misráðinn og Svíinn fékk eiginlega betra tafl eftir 10…d5!
Fljótlega eftir þetta var hvítur svo með strategískt verra tafl með þrípeð á d-línunni.
Svartur vann peðið til baka og svo peð í kaupbæti og Aleksandr náði ekki að finna kraftaverkabjörgun annan daginn í röð.
Svekkjandi tap eftir vel heppnaða byrjanataflmennsku. Aleksandr endaði í 22. sæti með 7 vinninga sem er aðeins neðar en styrkleikinn (15) sagði til um, 6 elóstig töpuðust á mótinu.
Benedikt Þórisson gerði jafntefli í lokaumferðinni við 2200 stiga Kúbverja. Benedikt hafnaði í 91. sæti með 5 vinninga sem er ofar en styrkleikasætið (103). Benedikt hækkar um tæp 48 elóstig fyrir sinn árangur!
Benedikt Briem tapaði í lokaumferðinni en hann náði sér engan veginn á strik seinni part mótsins eftir fína byrjun. Benedikt hafði 3 vinninga af 4 en fékk aðeins hálfan vinning í síðustu fimm skákunum. Síðustu tvær umferðirnar voru sérstaklega svekkjandi þar sem 38 elóstig flugu út í Adríahafið. Þrátt fyrir þetta hækkar Benedikt um 8 elóstig á mótinu en þau áttu að vera töluvert fleiri! Benedikt endaði númer 97 í röðinni með 4,5 vinning en hóf leik númer 75.
Þorsteinn Jakob F Þorsteinsson gerði jafntefli í lokaumferðinni gegn andstæðingi frá Kazakhstan. Þorsteinn hóf leik númer 110 en endaði með 3,5 vinning númer 123 í röðinni. Þorsteinn fékk mikið af skákmönnum sem voru greinilega alltof stigalágir miðað við getu. Fyrir vikið lækkar Þorsteinn um 110 elóstig á mótinu.
Opinn flokkur U16
Ingvar Wu Skarphéðinsson átti kaflaskipt mót og endaði á tapi í lokaumferðinni. Hann kom í hús með 4,5 vinning sem skilaði 100. sæti en styrkleikinn gaf 92. sætið. Ingvar var nokkurn veginn á sléttu, tapaði tæpum 3 elóstigum á mótinu.
Adam Omarsson varð einnig að lúta í dúk í lokaumferðinni og kom í mark með 4 vinninga í 109. sæti en upphafssætið var númer 97. Adam tapar 76 elóstigum á mótinu.
Stúlnkaflokkur U16
Iðunn Helgadóttir gerði jafntefli í lokaumferðinni við hina ítölsku Sharon Glover. Jafnteflið skilaði henni í 4,5 vinning sem skilaði henni í 81. sætið en hún hóf leik númer 59 í rásröðinni. Iðunn tapar 90 elóstigum á mótinu sem fór að mestu í styrkingu á stigahagkerfi Kazakhstan. Þreytandi þegar þjóðir bjóða hreinlega ekki upp á mót fyrir sína eigin skákmenn svo þeir fái skákstig sem samsvara styrkleika!
Opinn flokkur U14
Dagurinn í U14 var slæmur, allir strákarnir töpuðu sínum skákum. EMM-in mögulega morgunfúl í Montesilvano?
Matthías Björgvin Kjartansson endaði með 5 vinninga eftir tapið í lokaumferðinni sem skilaði honum í 100. sætið sem er öllu ofar en styrkleikaröðun sagið til um (121). Matthías Björgvin mokaði inn 84 elóstigum og var einn af „aflakóngum“ Íslendinga á mótinu í þeim efnum.
Mikael Bjarki Heiðarsson endaði einnig með 5 vinninga þrátt fyrir að lúta í dúk í lokin. 119. sætið varð niðurstaðan en Mikael hóf leik númer 100 í röðinni. Mikael tapar 82 elóstigum á mótinu.
Markús Orri Óskarsson kom næstur í röðinni með 4,5 vinning sem skilaði honum í 134. sætið aðeins ofar en styrkleikasætið sem var númer 136. Markús tapar tæpum 24 elóstigum á mótinu.
Markús Orri Jóhannsson endaði með 4 vinninga og í 149. sæti en hóf leik númer 135. Markús tapar um 17 elóstigum á mótinu.
Stúlnkaflokkur U14
Guðrún Fanney Briem endaði sitt mót á jafntefli og hlaut 6 vinninga á mótinu. Vinningarnir skiluðu Guðrúnu í 54. sætið en hún hóf leik númer 48. Guðrún Fanney tapar 116 elóstigum á mótinu.
Tenglar á skákir mótsins:
Opinn U18
Opinn U16
Stúlkur U16
Opinn U14
Stúlkur U14
chess.com
chess24
Chess-results tenglar:
Opinn flokkur U18 á chess-results
Opinn flokkur U16 á chess-results
Stúlknaflokkur U16 á chess-results
Opinn flokkur U14 á chess-results
Stúlknaflokkur U14 á chess-results
12 Íslendingar tóku þátt og voru þeir í eftirfarandi fimm flokkum:
Opinn flokkur U18
FM Aleksandr Domalchuk-Jonasson
Benedikt Briem
Benedikt Þórisson
Þorsteinn Jakob F Þorsteinsson
Opinn flokkur U16
Ingvar Wu Skarphéðinsson
Adam Omarsson
Stúlnkaflokkur U16
Iðunn Helgadóttir
Opinn flokkur U14
Mikael Bjarki Heiðarsson
Matthías Björgvin Kjartansson
Markús Orri Jóhannsson
Markús Orri Óskarsson
Stúlnkaflokkur U14
Guðrún Fanney Briem
Fararstjórar og þjálfarar í ferðinni voru þeir FT/FM Björn Ívar Karlsson og Gauti Páll Jónsson.















