Evrópumótinu í atskák lauk í dag, laugardag í Króatíu. Íslendingarnir fjórir sem tóku þátt stóðu sig almennt betur í hraðskákinni heldur en í atskákinni sem fór fram á undan hraðskákinni. Alexey Sarana var meðal efstu manna en náði ekki að klára fernuna, David Navara tók Evrópumeistaratitilinn í hraðskák.
Íslendingarnir sem tóku þátt voru: GM Hannes Hlífar Stefánsson, GM Helgi Áss Grétarsson, GM Jóhann Hjartarson og Gauti Páll Jónsson.

Þeir Helgi Áss Grétarsson og Jóhann Hjartarson stóðu sig best Íslendingana. Báðir tefldu þeir fjölda skáka á sýningarborðum (40 efstu borð) og Hannes Hlífar Stefánsson fylgdi þeim einnig eftir en endaspretturinn gekk illa hjá honum. Gauti átti mjög góðan sprett snemma móts þar sem hann vann fimm skákir í röð, fimm!

Helgi Áss endaði efstur Íslendingana í hraðskákinni líkt og í atskákinni. 9 vinningar komu í hús í skákunum 13 sem verður að teljast vel viðunandi árangur.
Helgi vann þrjár fyrstu skákir sínar en lenti þá gegn Baadur Jobava, gríðarlega sterkum georgískum skákmanni sem hefur náð yfir 2700 skákstig og byrjunin Jobava-London er kennd við. Jobava tefldi betur og knésetti Helga með skemmtilegum taktískum aðgerðum.
Klaufalegt tap fylgdi í kjölfarið en Helgi rétti úr kútnum með því að leggja tvo tæplega 2200 stiga menn og var aftur kominn á sýningarborð í áttundu umferðinni. Þar mætti hann pólskum skákmanni, Wojciech Przybylski og tefldi Helgi glæsilega sóknarskák…Helgi stóð til vinnings en virðist hafa fallið á tíma í lokastöðunni á klaufalegan hátt.
Helgi þurfti því aftur að vinna sig upp á sýningarborð í tíundu umferðina. Þar gerði Helgi engin mistök og ef ritstjórninn þekkir hann rétt hefur líklegast soðið eilítið á honum og einbeitingin verið í botni eftir slysið í áttundu umferð. Fór líka svo að Helgi gjörsamlega valtaði yfir þýskan andstæðing sinn sem fær líklegast einhverjar martraðir eftir þessa flengingu!
Helgi var því búinn að mjaka sér inn í ágætis baráttusæti og mætti stórmeistaranum Ante Saric í 11. umferðinni. Lykilskák upp á góðan endasprett. Hér var á ferðinni mikil baráttuskák og Helgi nagar sig mjög líklega í handarbökin að hafa misst af tiltölulega einföldum leik í þessari lykilskák.
38…Bb4 vinnur hér skiptamun en Helgi missti af því og lék 38…Bd6?
Aftur kom dauðafæri
49…Hxf4?? var ekki góður þar sem 49…Rxd2 var í boði og svartur vinnur lið.
Niðurstaðan hér svekkjandi tap þar sem sigur hefði gefið Helga hvítt í næstu skák og möguleika á góðu sæti á endasprettinum. Þess í stað þurfti Helgi að vinna sig aftur upp á sýningarborðin fyrir lokaumferðina. Þar vann Helgi sigur en skákin sem birt er stemmir engan veginn við úrslit þannig að við birtum hana ekki.
Lokaniðurstaðan 9 vinningar af 13 og hafnaði Helgi í 45. sæti og gerði þar betur en styrkleikaröðin gaf til kynna en þar var Helgi númer 58 í röðinni. Þrátt fyrir þennan fína árangur tapar Helgi 5 hraðskákstigum sem sýnir hvað „senan“ er orðin erfið. Stigalægri andstæðingar verða alltaf sterkari og sterkari og erfiðara verður að halda háum elóstigum.

Jóhann Hjartarson kom næstur Íslendinga í mark. Jóhann endaði með 8,5 vinning og átti mjög fína spretti. Líkt og Helgi Áss vann hann þrjár fyrstu skákir sínar og fékk krefjandi pörun í fjórðu umferð, azerska landsliðsmanninn Rauf Mamedov. Mamedov þessi er líka annálaður hraðskákmaður og var til að mynda einn stigahæsti hraðskákmaður heims á skákþjóninum ICC á gullaldarárum þeirra snemma á öldinni.
Þótt Jóhann sé ekki týpan til að svekkja sig á að misnota dauðafæri þá hljóta samt svona færi að svíða eitthvað. Skákin endaði með jafntefli en Jóhann missti af tveimur rosalegum færum. Í fyrra skiptið átti Jóhann „killer“ taktík.
Jóhann lék 28…Kg7 og hélt fínni stöðu en 28…H2d3! klárar einfaldlega dæmið! Hvítur á enga vörn við …Hxg3 í næsta leik og svartur á inni skákina á e2 ef með þarf!
Áfram tefldist skákin og upp kom steindautt „mislinga“ endatafl. Allt þar til Jóhann lék síðasta leik sínum 52…Bd4?? og jafntefli var samið.
52…Kg6! snýr taflinu við. Svarti kóngurinn á greiða leið inn í herbúðir hvíts í gegnum h4 reitinn og svartur nær nokkuð auðveldlega að valda eigin peð. Góð úrslit en svekkjandi að missa af þessum færum.
Jafnteflið þýddi þó áframhaldandi baráttu við erfiða andstæðinga. Aftur fékk Jóhann azerskan landsliðsmann, núna Eltaj Safarli. Safarli fékk snemma betri stöðu með gott rými. Jóhann fékk þó sinn séns en virtist treysta stigaháum andstæðingi sínum um of.
Eftir mannsfórn á g4 drap Jóhann á c6 með drottningu en má líklega taka manninn með 27.hxg4 og ekki er ljóst hvað svartur ætlaði að gera í framhaldinu.
Jóhann þurfti að vinna sig aftur upp í sjöttu umferðinni en í þeirri sjöundu mætti hann úkraínskum skákmanni. Nokkuð öruggur sigur vannst í þeirri skák en Jóhann missti samt af skemmtilegri leið.
16.Dxd8! hefði verið skemmtileg leið hér. Ef svartur skiptir upp á þungum mönnum fellur a7 bótalaust. Ef svartur reynir að vinna drottninguna með 16…Bxd8 kemur 17.b4 og svartur er í vandræðum með skákina í borðinu! Jóhann vann engu að síður nokkuð auðveldan sigur.
Jóhann hélt svo nokkuð vel velli í næstu umferðum sem sést best á því að hann var á sýningarborði í þeim öllum. Hér eru skákir Jóhanns í lokaumferðunum.
Lokaniðurstaðan 8,5 vinningur og hefði Jóhann náði sigri í lokaumferðinni hefði hann náð ansi góðu sæti eins og Helgi Áss lenti í í atskákinni. Það er alltaf verra fyrir gott sæti að tapa í lokaumferðinni en Jóhann endaði samt í 54. sæti sem var aðeins ofar en styrkleikasætið sem var númer 56. Jóhann hækkar jafnframt um tæp 9 hraðskákstig fyrir árangurinn.

Hannes var lengi vel á svipuðu róli og Helgi og Jóhann en endaspretturinn var ekki góður þar sem þrjár síðustu skákirnar töpuðust. Hér eru skákir Hannesar sem voru á sýningarborðum:
Hannes endaði með 7 vinninga af 13 sem er ekki góður árangur hjá þessum sterka skákmanni. Hannes var númer 44 í styrkleikaröðinni en endaði númer 182 á mótinu. Hannes tapar tæplega 32 hraðskákstigum á mótinu.

Gauti Páll náði aðeins einni skák á sýningarborðum en það var enginn smá séns! Gauti fékk hvítt á stigahæsta mann mótsins, Armenann Haik Martirosyan.
Gauti fékk furðugóða sénsa snemma tafls. Eftir 14…g6 lék Gauti 15.Rg3 en 15.f6! hefði verið þrumuleikur! Svartur má ekki taka manninn 15…gxh5 16.Dxh5 vegna Hf1-f3-h3 og fátt er um varnir hjá svörtum. Hvítur getur svo oft leikið Bd2 til að hóta Bb4 og loka flóttaleið kóngsins og svo kemur hinn hrókurinn í spilið og tjaldið fellur.
Svartur hefði því þurft að finna aðrar leiðir til að tefla taflið en geri hann það koma hvítu mennirnir óhindraðir í sóknina. Það hefði verið magnað að hefja leik á þessu móti með því að leggja stigahæsta manninn en svo varð ekki að þessu sinni.
Gauti kom á endanum í mark með 7 vinninga, eins og Hannes. Gauti var númer 278 í styrkleikaröð en endaði miklu ofar, í 164. sæti. Gauti hagnaðist um tæp 33 hraðskákstig og sérstaklega var gaman að sjá fimm vinningsskákir í röð eftir vafalítið svekkjandi tap í annarri umferð.
Heilt yfir fínt mót hjá Íslendingunum. Vonandi verður þetta mót í betra „flugfæri“ að ári og við sjáum Íslendingana fjölmenna á þetta mót!
Evrópumeistarinn í hraðskák varð David Navara

Gamla brýnið Vasyl Ivanchuk kom næstur, einn í öðru sæti og svo komu tveir balkanmenn í 3-4. sæti. Í fimmta sæti var svo Alexey Sarana, fínn árangur að mörgu leiti en þessi mikli meistari var efstur á mótinu eftir tíu umferðir af þrettán þannig að möguleikinn á fernunni var lifandi þar til David Navara lagði hann að velli.
Til upprifjunar þá varð Alexey Sarana Evrópumeistari í skák fyrr á árinu, þá Evrópumeistari landsliða með Serbíu og í fyrradag Evrópumeistari í atskák…hreint magnaður árangur! Hefði hann klárað fernuna er erfitt að ímynda sér að slíkt yrði endurtekið!
Í lokin er rétt að varpa fram léttri gátu.

Á skjáskotinu að ofan er áskorunin að finna allavega tvo íslenska hluti, þessir hlutir mega vera íslenskir stórmeistarar eða fáni. Fullt hús fæst fyrir þrjá slíka hluti!
















