Íslandsmótið í atskák var haldið í gær á Selfossi, nánari tiltekið í Bankanum vinnustofu. Annað árið í röð þar sem mótið er haldið á Selfossi.
Skemmst er frá því að segja að Hilmir Freyr Heimisson vann glæsilegan sigur á mótinu! Fyrirfram hefðu margir veðjað á Vigni Vatnar Stefánsson en Vignir var að berjast um að ná „þrennunni“ þ.e. vinna Íslandsmeistaratitil í kappskák, atskák og hraðskák á sama árinu. Aðrir titilhafar sem mátti búast við í toppbaráttunni voru Helgi Áss Grétarsson og bræðurnir Björn og Bragi Þorfinnssynir.
Flestir topparnir byrjuðu vel en Vignir missti niður hálfan vinning strax í annari umferð. Hinn ungi Ingvar Wu Skarphéðinsson varðist þá vel með svörtu. Vignir var að gera allt rétt, tefldi upp á að fá frelsingja gegn þekkti peðastöðu svarts sem yfirleitt kemur upp í uppskiptaafbriðginu spænska.
Vignir búinn að gera allt rétt hér og er líklegast með strategískt unnið eftir 45.Be5! og svartur á orðið erfitt með að leika. Hér fór Vignir aðeins að missa þráðinn eftir 45.Kf4 c6 46.Bc4 b5! Ingvar gerði allt rétt í vörninni í framhaldinu…nema eitt
Hér tók Ingvar jafnteflisboði Vignis…þegar svarta staðan er orðin unnin!
Fimm höfðu enn fullt hús eftir þrjár umferðir en Helgi Áss og Hilmir stóðu einir eftir með fullt hús eftir fjórar umferðir.
Hilmir náði að nýta sér illa stæðan biskup hvíts á h4.
39…Hb4 og biskupinn féll í kjölfarið.
Helgi sýndi að „riddari úti á kanti“ getur verið eilífðarvandamál. Björn var í stórkostlegum vandræðum strax út úr byrjuninni.
Riddarann á h5 er ekki hægt að valda. 17…Dh4 er svarað með 18.Rf5 og svartur missir valdið. 17…Rxd4 18.Hxd4 Dh4 er svo svarað með 19.e5 með sömu niðurstöðu. Björn tapaði manni.
Hilmir lagði Helga svo að velli í toppuppgjörinu í fimmtu umferð. Hilmir vann peð með hvítu en Helgi hafði mótspil. Helgi virðist svo hafa fallið á tíma í erfiðri vörn, gríðarlega mikilvægur punktur hjá Hilmi.
Hilmir var kominn með 9 vinninga af 9 á Jólahraðskákmóti TR fyrir nokkrum dögum og þá stoppaði Vignir sigurgöngu Hilmis. Vignir gerði það aftur hér á atmótinu í sjöttu umferð en í þetta skiptið var niðurstaðan jafntefli. Hilmir sýndi hvað hann er vel stúderaður með því að hafa langa teóríu í slavneskri vörn á hreinu, svartur fórnar peði en treystir á virka menn og mótspil, eitthvað sem hentar skákstil Hilmis sérdeilis prýðilega. Úr varð skemmtileg skák sem var þó liklegast alltaf „innan jafnteflismarka“
Hilmir hafði nú fimm og hálfan vinning af sex en fjórir skákmenn önduðu í hálsmálið á honum aðeins hálfum vinningi á eftir. Þetta forskot hélst eftir sjöundu umferð þar sem Hilmir lagði Örn Leó að velli með mikilli seiglu, Örn Leó féll á tíma í hrókaendatafli sem líklegast er jafntefli með bestu vörn en vörnin er samt ekki auðveld.
Vignir lagði Helga Áss og Gauti Páll kippti Bárði Erni úr baráttunni.
Hilmir lagði Gauta Pál í 8. umferð í skemmtilegri skák en Björn Þorfinnsson lagði Vigni að velli sem þýddi að Hilmir hafi tryggt sér titilinn fyrir lokaumferðina. Baráttan um 2. sætið var hinsvegar grjóthörð.
Bragi lagði David Kolka með þekktri taktík:
https://clips.twitch.tv/FitImportantCroissantPeteZaroll-RwiRpOP7x3ye98YQ
Í lokaumferðinni sýndi Hilmir að hann var einfaldlega bestur á þessu móti og lagði Björn Þorfinnsson að velli. Kom í mark með 8,5 af 9 sem er framúrskarandi árangur.
Vignir Vatnar Stefánsson endaði í öðru sæti með 7 vinninga ásamt Helga Áss en hafði betur á innbyrðis viðureign.
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir átti frábæran endasprett og endaði ein í 4. sæti með 6,5 vinning og varð jafnframt Íslandsmeistari kvenna í atskák.
Markús Orri Óskarsson hlaut stigaverðlaun.
Mótshald gekk gríðarlega vel, CAD bræður orðnir reyndir í bransanum, Daði Ómarsson stóð sig vel í hlutverki skákstjóra og útsending gekk vel þar sem Benedikt Briem átti góða frumraun. Styrktaraðilar fá bestu þakkir og vonandi heldur þessi hefð áfram enda stórskemmtilegt að skreppa og tefla á Selfossi!























