Anish Giri lokaði mótinu á hefðbundin hátt. Mynd; Heimasíða mótsins.

Anish Giri er á góðu skriði á Tata Steel mótinu í Sjávarvíkinni í Hollandi og leiðir mótið með 3,5 vinning af 4 en framundan er fyrsti frídagur mótsins. Segja má að

Giri mætti Donchenko (2643) í þriðju umferðinni og vann góðan tæknilegan sigur með svörtu mönnunum. Giri náði vel stæðum riddara á e4 reitnum sem kostaði stöðulegar veikingar á hvítu stöðunni. Giri braust svo í gegn í lokin á kóngsvængnum.

Giri fylgdi þessu eftir með sigri í 4. umferðinn í dag. Hann tók Indverjann efnilega D Gukesh (2725) í kennslu í endataflstækni. Báðir höfðu hrók og biskup og fjögur peð á sama væng. Biskuparnir voru mislitir og biskup Giri stóð mun betur. Peð Gukesh féllu eitt af öðru, flottur og mikilvægur sigur hjá Giri.

Alireza Firouzja hefur aðeins hægt á sér eftir öfluga byrjun og gert jafntefli í tveimur síðustu skákum sínum. Hann er í öðru sæti með 3 vinninga.

Annar Indverji, Rameshbabu Pragganandha er ásamt nokkrum öðrum í skiptu þriðja sæti með 2,5 vinning. Pragga lagði heimsmeistarann Ding Liren í fjórðu umferðinni og varð þarmeð fyrsti skákmaðurinn til að leggja hann að velli sem ríkjandi heimsmeistara í kappskák. Pragga er jafnframt orðinn stigahæsti Indverjinn.

Pragga þrefaldaði þungu mennina sína á b-línunni og vann mikilvægt peðí miðtafli úr spænskum leik. Endataflið sigldi hann svo örugglega til sigurs peðinu yfir.

Wei Yi vann sína skák í dag og er ásamt Pragga, Nepo og Abdusattorov með 2,5 vinning. Kínverjinn náði hættulegum hrókum á sjöundu reitaröð og þá þarf yfirleitt ekki að spyrja að leikslokum.

Í Challengers eru Korobov, Hans Niemann og Íslandvinurinn Erwin l’Ami efstir með 3 vinninga.

Á morgun er fyrsti frídagur af þremur á mótinu, fimmta umferð fer fram á fimmtudaginn.

- Auglýsing -