Hannes Hlífar Stefánsson (2496) tapaði í dag með svörtu gegn GM Petr Neumann (2398) frá Tékklandi í sjöttu umferðinni í lokuðum GM flokki í Tékklandi.

Hannes tefldi af nokkurri áræðni með svörtu í byrjuninni og virtist standa ágætlega í miðtaflinu en urðu þar mislagðar hendur. Hvítur vann peð og skömmu síðar hrundi allt þegar hvítur landaði gaffli á jaðri borðsins.

Hannes hefur 2,5 vinning af 6 mögulegum og er neðarlega á stöðutöflunni þrátt fyrir að vera stigahæsti keppandinn. Hannes mætir IM Tao Pang (2430) frá Kína í 7. umferðinni og vonandi réttir hann úr kútnum í lokin.

- Auglýsing -