Gauti Páll Jónsson er orðinn einn efstur á Skákþingi Reykjavíkur eftir sigur á Lenku Ptacnikovu í fjórðu umferðinni sem fram fór í kvöld. Gauti hefur því fullt hús, 4 vinninga úr 4 skákum. Þrír skákmenn koma hálfum vinningi á eftir Gauta.
Gauti var jafn ásamt Lenku Ptacnikovu fyrir umferðina. Þau mættust í fjórðu umferðinni og hafði Lenka hvítu mennina. Lenka fékk betra úr byrjuninni og þægilegri stöðu. Lenku tókst ekki að vinna úr yfirburðunum og smátt og smátt komst Gauti inn í skákina og upp kom tvöfalt hróksendatafl þar sem hvítur reyndi að setja pressu á svörtu stöðuna en Gauti með svart hélt velli. Þá skyndilega gerðust óvæntir hlutir, Lenka gleymdi sér og féll á tíma. Dýrkeypt mistök og Gauti hrifsaði þar með efsta sætið til sín.

Eftir smá sviptingar snemma í byrjuninni náði Dagur fínum stöðuyfirburðum í miðtaflinu með biskupaparið og fjarlægan frelsingja gegn Benedikt. Þetta nægði Degi til sigurs en þó eftir töluverða baráttu.

Bárður fékk þægilegra tafl snemma með svörtu gegn Ingvari Wu og hefur Bárður verið iðinn að klára slíkar stöður undanfarið. Ingvar varðist hinsvegar með kjafti og klóm. Bárður komst vissulega í hróksendatafl peði yfir en það dugði ekki til vinnings þar sem Ingvar virtist hafa varnaraðferðir í slíkum stöðum á hreinu og gaf engin færi á sér!

David Kolka náði að blanda sér í baráttuna með sigri á Júlíusi. Eftir stöðulega baráttu stóð kóngsvængur Júlíusar skyndilega berskjaldaður og David náði að beita nægjanlegu afli í sókn þar til að knésetja reynslumikinn andstæðing sinn.

Jóhann Ingvason bættist í hóp skákmanna með 3,5 vinning. Andstæðingur hans, Sigurjón Haraldsson sá einhverja drauga í stöðunni seint í skákinni og lék af sér.
28.Dxb4 er í fínu lagi hér og staðan í jafnvægi. 28.Dc1?? færði Jóhanni vinningsstöðu eftir 28…bxa3.
Helstu úrslit 4. umferðar:

Gauti orðinn einn efstur með 4 vinninga en þeir Dagur, David Kolka og Johann Ingvason fylgja skammt á eftir. Bárður og Hilmir hafa vafalítið sagt sitt síðasta og lúra skammt frá efstu mönnum.

Fleiri myndir frá umferðinni (Myndir: Una Strand Viðarsdóttir og Daði Ómarsson)

- Mótsfrétt með tímamörkum, verðlaunum, tiebreaks o.fl.
- Skákir á livecloud
- Skákir á lichess
- Mótið á chess-results
















