Gauti Páll Jónsson er efstur á Skákþingi Reykjavíkur ásamt Degi Ragnarssyni. Gauti Páll þurfti að taka hálfs vinnings hjásetu í umferðinni og Dagur nýtti tækifærið og lagði Jóhann Ingvason að velli og náði Gauta að vinningum.

Dagur náði undirtökunum í miðtaflinu og náði að sækja fram á kóngsvæng á meðan Jóhann með hvítt var eiginlega mótspilslaus.
Hilmir Freyr fékk frían vinning á öðru borði þar sem David Kolka forfallaðist og Hilmir er því hálfum vinningi frá efstu mönnum.

Bárður Örn er líka hálfum vinningi frá efstu mönnum. Hann lagði Kristján Örn í 5. umferðinni. Kristján byrjaði með einhvern derring á kóngsvæng en Bárður kæfði það fljótlega og skildi Kristján eftir í þröngri stöðu og í vörn. Kristján er of ansi siegur að halda sér fast en Bárður er líka klókur í svona stöðum og hann fann leið i gegn.

Björn Hólm náði ekki að brjóta niður varnir Sverris Sigurðssonar og þeir skildu jafnir.

Fjölskyldubarátta var hjá Josef gegn Lenku. Benkö-biskupinn á g7 var sterkur og Lenka fann vinningsleik hér:
19…Rf3+ og hvítur tapar liði.
Helstu úrslit 5. umferðar

Dagur og Gauti efstir með 4,5 vinning og ættu að mætast í næstu umferð. Innbyrðis viðureign hinna fjögurra fræknu með 4 vinninga verða svo vafalítið spennandi!

Sjötta umferðin fer fram næstkomandi miðvikudag.
Fleiri myndir frá umferðinni (myndir: Una Strand Viðarsdóttir)

- Mótsfrétt með tímamörkum, verðlaunum, tiebreaks o.fl.
- Skákir á livecloud
- Skákir á lichess
- Mótið á chess-results
















