Í dag, föstudaginn, 26. janúar er Skákdagur Íslands haldinn hátíðlegur.  Friðrik Ólafsson afmæli og í ár er hann 89 ára gamall. Hann er í fullu fjöri og virkur þátttakandi í skáklífi landsins.

Í tilefni dagsins útbjó Skáksamband Íslands myndband um Friðrik og hans glæsta skákferil. Myndbandið er sett fram á skemmtilegan hátt og hentar vel til sýningar fyrir alla aldurshópa.

Við hvetjum alla sem taflmanni geta valdið að grípa í skák í eða um helgina! Pabbar, mömmur, afar, ömmur og börn og unglingar!

Bent er á Friðriksmót Vinaskákfélagsins sem fram fer á morgun. Þar geta áhugasamir teflt Friðrik til heiðurs. Á laugardaginn fer einnig fram Íslandsmót stúlknasveita í Kópavogi þar sem bestu ungu skákstelpur landsins tefla! Þar er tækifæri á að horfa á skákframtíðina!

Bent er á að á dagskrá RÚV má finna í þáttinn Stórmeistarann, heimildarmynd um Friðrik. Þáttinn má auk þess nálgast á Sarpinum (hér og hér) ásamt kvikmyndinni „Konunglegur leikur

- Auglýsing -