Þriðja umferð Íslandsmót kvenna og Íslandsmót öldunga (+65) hefst kl. 18 í dag. Spennandi viðureignir framundan og línur geta skýrst. Eða bara alls ekki!
Íslandsmót kvenna
Margt bendir til þess tvær stigahæstu skákkonur landsins, Olga og Lenka, berjist um Íslandsmeistaratitilinn. Þær eru á toppnum með fullt hús eftir tvær umferðir. Pörun dagsins er:
- Veronika (1) – Lenka (2)
- Tinna Kristín (0) – Olga (2)
- Jóhanna Björg (1) – Guðrún Fanney (1)
- Elsa María (0) – Iðunn (1)
Íslandsmót öldunga (+65)
Bragi, Björgvin og Ögmundur eru efstir með 1½ vinning. Björgvin og Ögmundur mætast og Bragi teflir við Þór Valtýsson fyrrum Íslandsmeistara öldunga.
- Björgvin (1½) – Ögmundur (1½)
- Þór (1) – Bragi (1½)
- Páll (0) – Kristján Örn (½)
Beinar útsendingar (10 mínútna seinkun) má finna á LiChess.
- Auglýsing -















