Landsliðsflokkur Skákþings Íslands 2024 verður haldinn í Mosfellsbæ 16.-28. apríl nk. Mótsstaður verður Íþróttamiðstöðin Kletti (Golfskálinn við Hlíðarvöll).
Mótið í ár verður eitt það sterkasta í sögunni. Af tólf keppendum eru sjö stórmeistarar!
Búast má við harðri baráttu enda hafa sex keppenda mótsins hampað Íslandsmeistaratitlinum.
Ver Vignir Vatnar titilinn? Vinnur Hannes í fjórtánda skipti? Fylgir Héðinn eftir góðu gengi á Reykjavíkurskákmótinu? Safnar Gummi enn einu bæjarfélaginu í sarpinn (hefur unnið í þremur mismunandi)? Vinnur Bragi í fyrsta skipti? Koma alþjóðlegu meistararnir sterkir inn? Hvað gera Olga og Bárður á sínu fyrsta Íslandsmóti? Áfram Helgi?
Keppendalistinn er sem hér segir (skákstig í sviga).
- Hjörvar Steinn Grétarsson (2518), stórmeistari – tvöfaldur meistari
- Héðinn Steinrímsson (2502), stórmeistari – þrefaldur meistari
- Hannes Hlífar Stefánsson (2493), stórmeistari – þrettánfaldur meistari!
- Guðmundur Kjartansson (2480), stórmeistari – þrefaldur meistari
- Helgi Áss Grétarsson (2468), stórmeistari – íslandsmeistari 2018
- Vignir Vatnar Stefánsson (2459), stórmeistari – núverandi Íslandsmeistari
- Bragi Þorfinnsson (2379), stórmeistari
- Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2368), alþjóðlegur meistari (bíður formlegrar útnefningar)
- Hilmir Freyr Heimisson (2361), alþjóðlegur meistari
- Dagur Ragnarsson (2333), alþjóðlegur meistari
- Olga Prudnykova (2263), alþjóðlegur meistari kvenna
- Bárður Örn Birkisson (2169), Kandídatameistari
Að sjálfsögðu verður allt í beinni og góðar aðstæður fyrir áhorfendur á skákstað.
Nánar um útsendingar og mótið á næstu dögum.