Teflt er við fyrirmyndaraðstæður í Brekkuskóla.

Mikil spenna er á Landsmótinu í skólaskák þegar 6 umferðum af 11 er lokið. Mótið fer fram í Brekkuskóla á Akureyri og lýkur með 7.-11. umferð í dag. 36 keppendur víðsvegar af landinu taka þátt!

1.-4. bekkur

Karma Halldórsson (Grunnskóla Ísafjarðar) og Pétur Ernir Úlfarsson (Langholtsskóla) eru efstir með fullt hús. Haukur Víðis Leósson (Hlíðarskóla) er þriðji með 5 vinning og Liam Nam Tram (Snælandsskóla) fjórði með 4 vinninga. Efstu menn eiga mikið eftir að mæta innbyrðir.

Loftur Þorsteinsson (Flúðaskóla) er eftur landsbyggðarmanna með 3 vinninga.

Staðan

5.-7. bekkur

Birkir Hallmundarson (Lindaskóla) er efstur með tullt hús. Jósef Omarsson (Landakotsskóli) er annar með 5½ vinning, Sigurður Páll Guðnýjarson (Laindaskóla) þriðji með 5 vinninga og Örvar Hólm Brynjarsson (Lindaskóla) fjórði með 4½ vinning. Efstu menn eiga líka mikið eftir að mæta innbyrðis.

Sigþór Árni Siggeirsson (Oddeyrarskóla) er efstur landsbyggðarmanna með 3 vinninga.

Staðan

 

8.-10. bekkur

Mikael Bjarki Heiðarsson (Vatnendaskóla) er efstur með fullt hús. Norðanmennirnir Markús Orri Óskarsson (Síðuskóla) og Kristján Ingi Smárason (Borgarhólsskóla) koma næstir með 5½ vinning. Markús Orri Jóhannsson (Háteigsskóla) er fjórði með 5 vinninga. Þessir fjórir hafa slitið frá öðrum og berjast um sigurinn. Rétt eins og í hinum flokkunum eiga efstu menn mikið eftir að mæta innbyrðis.

https://chess-results.com/tnr934986.aspx?lan=1&art=1&fed=ISL

https://chess-results.com/tnr934986.aspx?lan=1&art=1&fed=ISL

- Auglýsing -