Íslandsmótið í skólaskák fór fram um helgina í Brekkuskóla á Akureyri. Landsmótsmeistarar urðu Karma Halldórsson í 1.-4. bekk, Birkir Hallmundarson í 5.-7. bekk og Markús Orri Óskarsson í 8.-10. bekk. Tveir landsbyggðarmenn fögnuðu því Íslandsmeistaratitli sem teljast tíðindi til næsta bæjar.

1.-4. bekkur

Karma Halldórsson (Grunnskólanum á Ísafirði) kom sá og sigraði í yngsta flokki. Vann allar skákirnar 11 talsins. Magnað miðað við hversu litlu keppnisreynslu Karma hefur. Haukur Víðis Leósson (Hlíðaskóla) varð annar með 9½ vinning og Pétur Ernir Leósson (Langholtsskóla) þriðji með 9 vinninga.
Þessir þrír skáru sig úr. Þar sem Karma hlaut gullið féllu landbyggðarverðlaunin í hlut Lofts Þorsteinssonar (Flúðaskóla) sem hlaut 4 vinninga.
5.-7. bekkur
Birkir Hallmundarson (Lindaskóla) fór mikinn í miðflokknum. Rétt eins og Karma vann hann allar skákirnar ellefu talsins. Sigurður Páll Guðnýjarson félagi Birkis úr Lindaskóla varð annar með 9½ og Jósef Omarsson (Landakotsskóla) varð þriðji með 9 vinninga.
Sigþór Árni Sigurgeirsson (Oddeyrarskóla) varð fjórði með 7 vinninga og tók landsbyggðarverðlaunin.
8.-10. bekkur

Markús Orri Óskarsson (Síðuskóla á Akureyri) og Mikeal Bjarki Heiðarsson (Vatnsendaskóla) komu jafnir í mark með 10 vinning. Þeir tefldu aukakeppni og þar hafði Markús Orri betur, 2½-1½.. Þriðji varð Markús Orri Jóhannsson (Háteigsskóla).
Þar sem Markús Orri tók gullið féllu landsbyggðarverðlaunin í hluti Kristjáns Inga Smárasonar (Borgarhólsskóla í Húsavík) sem varð fjórði með 6½ vinning.
Mótshaldið í ár var í öruggum höndum Skákfélags Akureyrar. Áskell Örn Kárason, Rúnar Sigurpálsson og aðrir norðanmenn sem komu nálægt mótinu fá miklar þakkir fyrir frábært mótshald. Myndirnar tók Anastasia Leonova Kramarenko.


Lokastaðan á Chess-Results
Lokastaðan á Chess-Results
Lokastaðan á Chess-Results














