Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson rétti úr kútnum í 4. umferð á lokuðu alþjóðlegu móti, „Skákvikan í Przework“ þegar hann lagði heimamanninn Marcin Dziuba en mótið fer fram í samnefndum bæ í suð-austurhluta Póllands. 10 manns tefla í flokknum og er Hannes þriðji stigahæsti keppandinn.

Hannes hafði hvítt og náði undirtökunum í miðtaflinu og vann tvö peð sem dugði svo til sigurs nokkuð átakalaust.

Hannes hefur nú 2 vinninga úr 4 umferðum og mætir FIDE meistaranum Pawel Sowinski (2392) í 5. umferðinni á morgun en svo er tvöföld umferð framundan á sunnudaginn!

- Auglýsing -