Landsliðsmaðurinn Guðmundur Kjartansson var að sætta sig við tap í sjöundu umferðinni á Munich Open 2024 í dag. Andstæðingur Guðmundur var úkraínski kvennstórmeistrinn Evgenija Doluhanova (2272).
Upp kom flókin staða úr Marshall-árásinni gegn þríhyrnings-Slavanum. Sú úkraínska kom betur úr flækjunum og náði að vinna úr liðsaflanum.
Guðmundur hefur því 4,5 vinning að loknum 7 umferðum og er í skiptu 14. sæti. Pörun 8. umferðar liggur ekki fyrir að svo stöddu.
- Heimasíða mótsins
- Skákir á lichess
- Chess-results
- Auglýsing -
















