Aleksandr Domalchuk-Jonasson varð að sætta sig við skiptan hlut í 2. umferð á Heimsmeistarimóti U20 sem fram fer í Gujarati á Indlandi. Andstæðingur Aleksandr var heimamaður sem slapp með skrekkinn þar sem Aleksandr var með unnið tafl en missti af sterkum leikjum í nokkur skipti.
Fyrsta vænlega augnablikið var hér eftir 29.f4??
Hér hörfaði Aleksandr með 29…R5c6? en 29…c3+! hefði verið feykisterkur. Sést það hvað best eftir t.d. 30.Kc1 d3! og hvítur tapar liði eða 30.Kd1 Hb1+ 31.Ke2 d3+ 32.cxd3 c2 o.s.frv.
Annar séns til að leika c-peðinu kom stuttu síðar:
Aftur hefði 33…c3! verið feykisterkur leikur. 33…Rxh4 var leikið. Það var þó ekki fyrr en í 38. leik í tímahraki sem Aleksandr missti þráðinn. Hann lék þá kóng sínum til baka á c6 reitinn en 38…Kc4 með vald á d-peðinu hefði gefið unnið tafl.
Sá indverski náði í kjölfarið að halda hróksendataflinu.
Í þriðju umferð fær Aleksandr enn og aftur indverskan andstæðing með rétt yfir 1900 skákstig. Jeet Shah heitir kauði og er með 1946 skákstig.
- Heimasíða mótsins
- Mótið á chess-results
















