Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson tefldi í dag í næstsíðustu umferð á „Skákvikunni í Przeworsk“, lokuðum GM-flokki sem fram fer í Póllandi. Hannes gerði jafntefli í umferð dagsins eftir mikla baráttu.
Andstæðingur Hannesar var Pólverjinn Antoni Kozak (2434). Sá pólski hafði hvítt og náði að setja Hannes undir gríðarlega pressu. Í miðtaflinu varð Hannes að drepa með kóng á f6 til að tapa ekki liði. Kozak missti nokkrum sinnum af afgerandi leiðum og Hannes náði einhvern veginn að forðast náðarhöggið og náði í mikið seiglujafntefli!
Hannes hefur nú 4,5 vinning af 8 mögulegum en hefur hvítt í lokaumferðinni á morgun þar sem hann mætir alþjóðlega meistaranum Jan Malek (2461).
- Auglýsing -















