Menningarfélagið Miðbæjarskák heldur nú fimmta árið í röð Skákmót Laugardalslaugar. Mótið verður haldið laugardaginn 29. júní klukkan 13. Mótið hefur verið vel sótt undanfarin fjögur ár. Sigurvegarar fyrri ára:

2020: Jón Viktor Gunnarsson

2021: Vignir Vatnar Stefánsson

2022: Davíð Kjartansson

2023: Andrey Prudnikov

Mótið verður haldið á bökkum laugarinnar og uppi á þaki fyrir utan gömlu útiklefana. Skráningu í mótið í dag lýkur klukkan 12:00. Mótið er öllum opið. Taflið hefst stundvíslega klukkan 13, og tefldar verða 7. hraðskákir með tímamörkunum 4+3. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga. Þátttökugjald er 1500 krónur (500kr. fyrir 17 ára og yngri) sem greiðist með reiðufé eða korti, hjá skákstjóra. Boðið verður upp á kaffi meðfram mótinu og fá þáttakendur frítt í sund eftir mótið. Þáttakendur mæti tímanlega í afgreiðslu þar sem starfsfólk laugarinnar vísar þeim stystu leið að mótsstað.

Hér má sjá veðrið klukktíma áður en mótið hefst.

Veitt verða verðlaun í formi skipta í sund, 20 skipti í fyrstu verðlaun og 10 skipti í önnur og þriðju verðlaun. Sundmiðarnir gilda í allar laugar Reykjavíkurborgar. Veitt verða verðlaun fyrir efsta ungmennið (grunnskólaaldur), gjafabréf í Pylsuvagninn Laugardal. Einnig verður einn heppinn keppandi dreginn og fær líka gjafabréf í pylsuvagninn.

Miðbæjarskák þakkar Laugardalslaug kærlega fyrir gott samstarf undanfarin ár!

- Auglýsing -