Bandaríkin líka eru andstæðingar dagsins. Þeir voru kátir fyrir umferð dagsins.

Lið Íslands er í þriðja sæti  á HM landsliða í skák 50 ára og eldri, eftir 2-2 jafntefli gegn Slóvakíu í gær.  Mótið fer fram 2.-11. júlí í Kraká á Póllandi.

Bandaríkjamenn eru efstir með 14 stig, Ítalir aðrir með 13 stig . Við erum 3.–4. sæti ásamt Englandi með 12 stig. Liðin hafa jafnmarga vinninga og megum við alls ekki fá færri vinninga en Englendingar. Veitt eru tvö stig fyrir sigur en eitt fyrir jafntefli.

Við mæta Bandríkjunum líka (USA Too) í lokaumferðinni Grjóthörð sveit sem sú fimmta sterkasta á pappírnum. Englendingar tefla við Ísraelsmenn sem hvíla sinn sterkasta mann svo fyrirfram er á brattann á sækja.

Bein útsending á LiChess

Íslenska sveitin á mótinu er sterk sem endranær. Liðið skipa í borðaröð stórmeistarnir:

  1. SM Helgi Ólafsson (2466)
  2. SM Jóhann Hjartarson (2472)
  3. SM Margeir Pétursson (2397)
  4. SM Jón L. Árnason (2421)
  5. SM Þröstur Þórhallsson (2385)

Íslenka liðið teflir í flokki 50+ þar sem tefldar verða 9 umferðir. Alls taka 32 sveitir þátt í 50+ flokknum og er Ísland (2439) númer þrjú í styrkleikaröð á eftir feykisterkri sveit Bandaríkjamanna (2480) og heims- og Evrópumeistara Englendinga (2469). Skammt á hæla Íslendinga kemur sveit Ítala (2431) sem er svipuð að stigum og sú íslenska. Þessar fjórar sveitir eiga að vera í nokkrum sérflokki á þessu móti!

- Auglýsing -