Íslenska sveitin lauk í dag keppni á HM öldungasveita 50+ í Kraká í Póllandi. Fyrir umferðina var ljóst að framundan væri erfið barátta um bronsið sem verður að teljast vonbrigði eftir að sveitin hafði setið í efsta sæti að loknum sex umferðum. Fór svo að bronsið rann okkar mönnum úr greipum og urðum við að sætta okkur við fjórða sætið að þessu sinni.

Andstæðingur dagsins var b-sveit Bandaríkjanna

Bandaríkin líka eru andstæðingar dagsins. Þeir voru kátir fyrir umferð dagsins.

Jón L. hvíldi að þessu sinni hjá íslenska liðinu.

Helgi átti ekki góðan dag á efsta borði. Eitthvað virðist minnið hafa brugðist sem gerist ekki oft. Helgi hafði nefnilega áður teflt afbrigðið sem kom upp og reyndist andstæðingurinn undirbúinn fyrir það. Hvíta staðan varð fljótt krítísk eftir byrjunina og Helgi náði ekki að bjarga taflinu og tapaði illa.

Jóhann kvittaði þetta út á öðru borði þar sem hann hafði greinilega töluvert meiri og betri reynslu í broddgetlinum en andstæðingur hans, alþjóðlegi meistarinn Bill Paschall. Fínn sigur hjá Jóhanni.

Tvö öftustu borðin enduðu með jafntefli en þar voru á ferð menn sem báðir hlutu borðaverðlaun og lítið við þá að sakast.

Margeir virtist aldrei fá nóg til að tefla til vinnings og varð að sættast á skiptan hlut.

Þröstur sættist einnig á skiptan hlut með örlítið lakara tafl og kannski stöðutýpu sem hann þekkir ekki jafn vel og aðrar og ákvörðunin því skiljanleg.

2-2 jafntefli niðurstaðan en dugði ekki til þar sem Englendingar unnu sína viðureign.

Ákveðin vonbrigði að detta af palli eftir frábæra byrjun en svona getur verið stutt á milli í þessu. Bandaríkin voru verðskuldaðir sigurvegarar og Ítalir tóku silfrið. Englendingar lentu í skralli framan af móti en löguðu stöðuna í lokin og stálu bronsinu af okkar mönnum.

Huggun harmi gegn fengu okkar menn þó einstaklingsverðlaun. Margeir Pétursson stóð sig best á 3. borði og Þröstur var bestur í hlutverki varamanns. Jóhann Hjartarson var svo með næstbestan árangur á 2. borði. Enn og aftur er íslenska liðið í seilingarfjarlægð en bæði heimsmeistara og álfutitlarnir ætla að láta bíða eftir sér!

Mynd: Mark Livshitz

Íslenska sveitin á mótinu var sterk sem endranær. Liðið skipaði í borðaröð:

  1. Helgi Ólafsson
  2. Jóhann Hjartarson
  3. Margeir Pétursson
  4. Jón L. Árnason
  5. Þröstur Þórhallsson

Íslenka liðið tefldi í flokki 50+ þar sem tefldar voru 9 umferðir. Alls tóku 31 sveit þátt í 50+ flokknum og var Ísland (2439) númer þrjú í styrkleikaröð á eftir feykisterkri sveit Bandaríkjamanna (2480) og Evrópumeistarum Englendinga (2469). Skammt á hæla Íslendinga kom sveit Ítala (2431) sem var svipuð að stigum og sú íslenska og hefur oft reynst okkur erfið. Þessar fjórar sveitir áttu að vera í nokkrum sérflokki á þessu móti og röðuðu sér einmitt í fjögur efstu sætin!

- Auglýsing -