Þeir bræður Adam og Josef Omarssynir unnu báðir sínar skákir á hinu risastóra opna móti í Benasque á Spáni þar sem yfir 500 skákmenn þeyta hesta sína!

Adam lagði heimamanninn Unai Calvo Gomez (1990). Adam fékk upp Nimzo-indverska vörn sem honum hefur gengið vel með undanfarið. Adam virtist hafa betri skilning á stöðunni yfirspilaði andstæðing sinn og kláraði með flottri taktík í lokin.

Josef hafði svart gegn Fransisco Olmos Sanz (1706). Josef hafði vinning eftir langa og stranga skák í drottningarendatafli þar sem báðir fengu nýja drottningu og „annað“ drottningarendtafl tók við þar sem Josef hafði svo betur!

Adam hefur nú 4 vinninga af 7 en Josef 3,5 vinning af 7.

- Auglýsing -