Íslenski landsliðsmaðurinn Hilmir Freyr Heimisson (2392) tekur nú þátt í sterkri lokaði GM-grúppu í Köge í Danmörku. Ört er teflt og fyrstu þrír dagarnir voru allir tvöfaldir. Í dag voru tefldar fimmta og sjötta umferð. Hilmir fékk 1,5 vinning sem verður að teljast gott.
Í fyrri skákinni lagði Hilmi danska alþjóðlega meistarann og fýlupokann Jens Ove Fries-Nielsen. Sagan segir að enginn íslenskur skákmaður hafi nokkurn tímann unnið Danann sannfærandi á chess.com. Sigur Hilmis virtist þó nokkuð sannfærandi. Daninn gaf of mikinn tíma og skildi kónginn sinn eftir og berskjaldaðann. Ekki skynsamlegasta nálgunin gegn Hilmi!
Í seinni skákinni gerði Hilmir nokkuð öruggt jafntefli gegn búlgarska stórmeistaranum Martin Petrov.
Hilmir hefur því 3,5 vinning af 6 mögulegum. Næstu þrjá daga róast tempóið og tefld verður ein skák á dag.
















