Íslandsmeistarinn Helgi Áss Grétarsson gerði jafntefli í þriðju umferð á opnu móti í Slóvkíu. Helgi hefur nú 2 vinninga 3 mögulegum.
Andstæðingur Helga var FIDE meistarinn Josef Havelka (2361). Helgi hafði hvítt og upp kom kóngsindversk vörn. Eitthvað var Helgi ósáttur við ákvörðun hjá sér í byrjuinni ef marka má „sögu“ hans á Fésbókinni.

Ósagt skal látið hvort þetta hafi fengið svona á okkar mann en tiltölulega stutt jafntefli var samið í kjölfarið í drottningarlausu miðtafli.
Helgi hefur 2 vinninga af 3 og taflmennskan heldur áfram á morgun.
- Auglýsing -















