Þeir bræður Adam og Josef Omarssynir hafa verið á fínni siglingu í undanförnum umferðum á risastóru opnu móti í Benasque á Spáni þar sem yfir 500 skákmenn þeyta hesta sína! Í dag fengu þeir 1,5 vinning af 2 mögulegum.

Adam virðist kominn í einhverskonar ham og vann sína þriðju skák í röð! Að þessu sinni lá heimamaðurinn Zuhaitz Gimenez Lopez (2002) í valnum. Eins og undanfarnar skákir flæddi skák hans vel, hann fékk betra úr byrjuninni og hélt því fram í endatafl sem hann vann svo.

Skákin hjá Josef var meira í Jójó-stíl. Josef með hvítt fékk betra úr byrjuninni en missti þráðinn í miðtafli og þurfti að verja hróksendatafl peði undir. Það tókst og jafnteflið í hús gegn Mikel Vicente Ezeiza (2024).

Adam hefur nú 5 vinninga af 8 en Josef 4 vinninga af 8.

Lokaumferðin framundan á morgun!

- Auglýsing -