Hilmir Freyr að tafli á Haustmóti TR. Mynd: Heimasíða TR

Íslenski landsliðsmaðurinn Hilmir Freyr Heimisson (2392) tekur nú þátt í sterkri lokaði GM-grúppu í Köge í Danmörku. Ört er teflt og fyrstu þrír dagarnir voru allir tvöfaldir. Í dag var loks komið að einfaldri umferð, þeirri sjöundu, og þar sættist Hilmir á skiptan hlut gegn sænska stórmeistaranum Axel Smith.

Skák þeirra var týpiskt fyrir „nýmóderníska“ skák. Svartur var vel undirbúinn í byrjuninni og með sitt á hreinu. Þrátt fyrir vilja og tilburði Hilmis og örlítið betra tafl hafði hann ekki nóg til að tefla til vinnings og jafntefli niðurstaðan.

Hilmir hefur því 4 vinning af 7 mögulegum. Tvær umferðir eru eftir og Hilmir klárar vonandi vel. Skak.is spáir 1,5 af 2 í lokaumferðunum!

- Auglýsing -