Sigurvegarar á Meistaramóti Vinaskákfélagsins í hraðskák 2024: Arnljótur, Róbert og Hörður

Hið árlega sumarskákmót Vinaskákfélagsins var haldið mánudaginn 15 júlí 2024 í Vin að Hverfisgötu 47. Í þetta sinn voru keppendur 10 og veðurguðirnir voru okkur hliðhollir, glaða sólskyn, þannig að hægt var að tefla bæði inni og úti.

Mótið var að þessu sinni „65 ára afmælis skákmót Harðar Jónassonar 2024“.

Tefldar voru 6 umferðir með 4 mín. + 2 sek., á skák.

Áður en mótið hófst, þá gaf Andrius Mulevicius Herði og Vinaskákfélaginu súkkulaði frá Litháen, en hann var hér í stuttri heimsókn.

Karína sjálfboðaliði frá Noregi lék fyrsta leikinn fyrir Róbert Lagerman á móti Herði Jónassyni

Sigurvegari mótsins var Róbert Lagerman með 5,5 vinninga.

2 sæti: Eiríkur K. Björnsson með 5 vinninga.

3ja sæti: Sigurjón Haraldsson með 4 vinninga.

Sigurvegarar mótsins

Einnig var keppt um það hver ynni “Meistaramót Vinaskákfélagsins í hraðskák“ og varð Róbert Lagerman Hraðskákmeistari Vinaskákfélagsins 2024.

Skákdómari var Róbert Lagerman og mótstjóri var Hörður Jónasson.

Í hléi var boðið upp á kaffi og 2 * 25 manna súkkulaðitertur.

Hörður að fá sér fyrstu sneiðina

Hægt er að sjá öll úrslit mótsins hér: 65 ára afmælisskákmót Harðar Jónassonar 2024

Kveðja, Hörður Jónasson forseti Vinaskákfélagsins.

- Auglýsing -