Íslandsmeistarinn Helgi Áss Grétarsson lauk leik á opnu móti í Slóvakíu í dag. Hann gerði stutt jafntefli í lokaumferðinni.

Helgi hafði svart gegn pólska FIDE meistaranum Krzysztof Raczek (2344). Sá pólski tefldi rólegt og meinlaust afbrigði og bauð Helgi jafntefli í 8. leik sem sá pólski þáði.

Helgi endaði með 5,5 vinning af 9 og kláraði mótið í 22. sæti en var 12. í styrkleikaröð. Helgi tapar 10 stigum á mótinu. Annar Íslandsmeistari, Tomas Laurusas, sem vann Íslandsmót skákfélaga með Fjölni var annar af tveimur sigurvegurum mótsins með 7 vinninga af 9.

- Auglýsing -