Átta skákmenn mættu í Skákheimilið til þess að taka þátt í heimsmetstilraun FIDE í gær, þann 20. júlí. Skákmót var haldið með tilbrigðum þar sem sumir tefldu aðeins fleiri skákir en aðrir. Áskell Örn Kárason fékk flesta vinninga, eða sjö úr níu skákum; Símon Þórhallson fékk sex og hálfan.
Aðrir fengu minna en voru þó fullsæmdir að sínu. Mættir voru:
Anton Orri Jóhansson
Áskell Örn Kárason
Haraldur Haraldsson
Karl Egill Steingrímsson
Níels Ragnarsson
Nökkvi Már Valsson
Símon Þórhallsson
Stefán G. Jónsson
Sérstaka athygli vakti þátttaka tveggja félaga sem heimsóttu okkur úr fjarlægum landshluta, þeirra Haraldar og Níels. Megi þeir koma sem oftast!
- Auglýsing -

















