Eftir erfiða byrjun í lokuðum IM flokki í Olomouc í Tékklandi virðist landsliðskonan  Lenka Ptacnikova (2086) vera að tefla sig inn í mótið. Hún gerði jafntefli í 5. umferð, hennar annað jafntefli í röð.

Lenka mætti  Marek Ihnat (2097) og hafði svart. Lenka var með trausta stöðu úr Sikileyjarvörn en þá bauð Marek jafntefli snemma sem Lenka þáði.

Á morgun mætir Lenka alþjóðlega meistaranum Josef Jurek og hefur aftur svart.

- Auglýsing -