Áttunda umferð var tefld í dag á Spilimbergo Open, opnu móti á Ítalíu í samnefndum bæ Þeir Helgi Áss Grétarsson og Aleksandr Domalchuk-Jonasson tefla á mótinu. Enn fengum við einn sigur og eitt tap. Helgi vann sína skák en Sasha tapaði.
Í umferðinni mætti Helgi þýskum FIDE-meistara Benedikt Dauner (2342) og stýrði svörtu mönnunum. Helgi fékk fínt miðtafl eftir modern-byrjun þar sem skákin var fljót að fara á ótroðnar slóðir. Helgi sneri við söguþræðinum frá því í gær en þar lék hann „trikka“ af sér skiptamun, í dag var það Helgi sem trikkaði skiptamuninn af sínum andstæðingi og mátaði hann svo.
Aleksandr mætti heimamanninum Mattia Pegno (2150). Miðtaflið varð eilítið þyngra á Sasha eftir leikjavíxl í byrjuninni en hann var fljótur að ná baráttuskák. Sasha virtist svo vera að ná yfirhöndinni, vann peð en missti það aftur en vann svo aftur peð. Í þungri baráttu lék svo Sasha skyndilega af sér manni og skákinni ekki viðbjargandi.
Helgi hefur því 5,5 vinning en Aleksandr 4,5 vinning.
Í lokaumferðinni fær Helgi svart gegn Kazaka, Bersultan Moldagali (2331) en Aleksandr hefur hvítt á heimamanninn Massimiliano Botta (2190). Væri fínt að enda á tvöföldum sigri!
Spilimbergo Open er 9 umferða opið mót sem fram fer í ítalska bænum Spilimbergo frá 9-15. ágúst. Mótið er fyrir skákmenn yfir 2000 elóstigum með yfir 150 skákmenn. Belginn Daniel Dardha er stigahæstur keppenda of meðal þátttakenda er YouTube-stjarnan Levy Rozman sem eltist nú við stórmeistaratitilinn. Helgi Áss er númer 12 í stigaröðinni og Aleksandr er númer 30. Tímamörk eru 90+30















