Landsliðskonan Lenka Ptacnikova (2086) tapaði í sjöundu umferð á lokuðu alþjóðlegu móti í Olomouc, svokölluð IM-flokki. Lenka mætti kanadískum FIDE-meistara, Zachary Dukic (2244) sem tefldi rólega með svörtu og skipti upp á drottnignum snemma.
Taflið var lengst af í jafnvægi en skv. útsendingu lýkur skákinni skyndilega í stöðu sem er aðeins betri á svart. Líklegast hefur Lenka fallið á tíma en hún átti um mínútu eftir á klukkunni.
Í áttundu umferðinni hefur Lenka svart gegn Roman Zvaurka (2191).
- Auglýsing -
















