Opna Norðurlandamótið í Niðarósi (Þrándheimi) kláraðist í dag í Noregi. Það bar helst til tíðinda að Olga Prudnykova, Íslandsmeistari kvenna, hafnaði í 2. sæti í kvennaflokki. Olga og Hjörvar Steinn Grétarsson unnu bæði sínar skákir í lokaumferðinni.
Olga hafði svart í lokaumferðinni gegn IM Maxim Barth Stanford (2260). Olga stóð lengst af höllum fæti í skákinni og var nálægt tapi en barðist gríðarlega í vörninni og hélt sér á lífi.
Við tók endatafl sem ætti að vera í jafntefli og Maxim með hvítu hefur greinilega svekkt sig um of á að nýta ekki færin fyrr í skákinni og tókst ekki að aðlaga sig að nýjum raunveruleika og lék á endanum skákinni niður í tap. Seiglan í Olgu alveg hreint mögnuð í þessari skák…ekki ósvipað og í gær!
Þessi úrslit færðu Olga 2. sætið í kvennaflokki. Hún endaði með 5,5 vinning af 9 og í 15. sæti á mótinu. Pia Cramling hafði af henni Norðurlandameistaratitilinn á stigum en Olga fékk fínt verðlaunafé, yfir 3.000 evrur og hækkar auk þess um ein 6 elóstig. Endasprettur hennar á mótinu var frábær en hún vann síðustu fjórar skákir sínar.
Hjörvar mætti FM Sergey Eliseev (2275) í lokaumferðinni og hafði hvítt. Það stefndi í baráttuskák þegar Hjörvar fann skyndilega brellu í stöðunni og fangaði svörtu drottninguna út á jaðri borðsins.
Hjörvar endaði því með 6 vinninga og varð í 11. sæti á stigum. Hann lækkar um tæp 4 elóstig við þessa frammistöðu. Mikilvægt að fá Hjörvar í gang fyrir komandi Ólympíumót og þátttakan hér gríðarlega mikilvæg!
Svíinn Jung Min Seo varð hlutskarpastur á mótinu, hlaut 7 vinning og er Norðurlandameistari í opnum flokki 2024. Pia tók kvennaflokkinn eins og áður hefur komið fram.
Lewis Chess Legends mótið var tæplega 70 manna alþjóðlega skákmót sem jafnframt var opið Norðurlandamót í skák. Fjöldi titilhafa tók þátt og sendi Ísland tvo keppendur til leiks. Hjörvar Steinn Grétarsson, sem var stigahæsti skákmaður Íslands ekki alls fyrir löngu, var fulltrúi okkar ásamt Íslandsmeistara kvenna, Olgu Prudnykovu. Hjörvar var sjöundi í stigaröðinnit.













