Aleksandr Domalchuk-Jonasson heldur áfram að ná fínum úrslitum á opnu móti á Ítalíu, Lignano Sabbiadoro Open 2024. Vinningur kom í hús í fjórðu umferð og Aleksandr eða Sasha eins og hann er oft kallaður er einn í öðru sæti, hálfum vinningi á eftir efsta manni.

Í fjórðu umferðinni mætti Sasha Kumar Prudhvi (2129) frá Indlandi. Miðtaflið varð jöfn barátta eftir Grunfeldsvörn þar sem Sasha náði ekki að pressa nægjanlega með hvítu. Sasha komst einhvern veginn peði yfir í hróksendatafl með mikilli baráttu og seiglu og náði svo að koma skákinni í unnið peðsendatafl.

Aleksandr hefur því 3,5 vinning að loknum þremur umferðum og er einn í öðru sæti á eftir Ilan Schneider (2377) frá Argentínu sem hefur fullt hús. Þeir mætast í 5. umferð og hefur Aleksandr svörtu mennina.

Lignano Sabbiadoro Open 2024 er opið mót sem fram fer í bænum Lignano á Ítalíu. Mótið er flokkaskipt, fjórir flokka fara fram á sama tíma og teflir Aleksandr Domalchuk-Jonasson í Masters flokki þar sem hann er 8. í stigaröð af 52 keppendum. Stigahæstur keppenda er IM Ilya Martinovici (2439) frá Moldavíu. Fjórir stórmeistarar taka þátt og fjöldi titilhafa. Tefldar eru 9 umferðir eftir svissneska kerfinu.

- Auglýsing -