Dómstóll SÍ felldi sinn fjórða úrskurð á árinu í gær, 21. ágúst
Um er að ræða kæru Braga Halldórsson gegn stjórn SÍ. Krafa Braga var um að 2. mgr. samþykktar stjórnar Skáksambandsins Íslands um Tímaritið Skák frá 20. júní 2024 yrði felld úr gildi. Dómstóll SÍ samþykkt þá kröfu.
Sá texti sem felldur er úr gildi úr fundargerð, 20. júní hljómar svo:
Stjórn SÍ er tilbúið að styðja hvert blað um 100.000 kr. úr styrktarsjóði sambandsins. Ritstjóra og ritstjórn er falið að koma með raunhæfa áætlun til stjórnar hvernig því markmiði verði náð.Ritstjóri og ritstjórn beri ábyrgð á tekjuöflun og dreifingu blaðsins í samvinnu við skrifstofu SÍ. Skrifstofa SÍ, sem útgefandi, þarf að samþykkja öll útgjöld v/blaðsins áður til þeirra er stofnað.
Öðrum kröfum Braga var vísað frá.
Þenann úrskurð og aðra úrskurði dómstóls SÍ frá 2011 má finna á heimasíðu SÍ.

















