Alþjóðlegi meistarinn Áskell Örn Kárason varð að sætta sig við tap í fimmtu umferð á EM 65+ í Lignano á Ítalíu. Áskell mætti alþjóðlega meistaranum. Craig Pritchett (2187) frá Skotlandi.
Áskell stýrði hvítu í skákinni og upp kom broddgaltarafbrigðið. Taflmennskan í miðtaflinu var ekki nógu hnitmiðuð og sá skoski tók yfirhöndina og hafði betur.
Við þessi úrslit dettur Áskell niður í 25. sætið með 3 vinninga af 5. Fjórir reyndir stórmeistarar eru nú jafnir og efstir með 4,5 vinning, Knaack eftir sem áður ásamt Ftacnik, Sturua og Garcia Fernandez.
Áskell fær svart í sjöttu umferð gegn sænskum skákmanni Conny Holst (2112).
- Skákir á lichess
- Chess-Results (passa að smella á 65+)
- Úrslitasíða (torlæsileg!)
- Auglýsing -