Íslandsmót barna- og unglingasveita fór fram um helgina í Miðgarði í félagsaðstöðu Taflfélags Garðabæjar. Teflt var í þremur flokki, A-flokki ætlar 8. bekk og upp úr, B-flokki ætluðum 4-7 bekk og C-flokki 1-3. bekk.

A-flokkur

Í efsta flokki urðu Blikar hlutskarpastir en þeir höfðu betur gegn B-sveit Breiðabliks og A-sveit Taflfélags Reykjavíkur og mjótt var á mununum! Breiðabli-A gerði jafntefli í innbyrðisviðureign við Breiðablik-B og höfðu TR-A á „reimunum“ 2,5-1,5. Lokaniðurstaðan að Breiðablik-A hafði 26 vinninga, B-sveitin 25 og TR-A rétt á eftir með 24 vinninga

A-flokkur á Chess-Results

B-flokkur

Baráttan á miðstiginu var einnig grjóthörð! Fjölnissveitin endaði á því að hafa TR-A undir með hálfum vinningi! KR kom ekki langt á eftir í grótharðri toppbaráttu.

Borðaverðlaunahafar á miðstigi (B-flokkur)

B-flokkur á Chess-Results

C-flokkur

Í c-flokki varð Taflfélag Reykjavíkur efst með 16 vinninga eftir 5 umferðir. Skákdeild Fjölnis A og KR A háðu harða baráttu um verðlaunasætin og fór svo að Fjölnir tók silfrið og KR bronsið.

C-flokkur á Chess-Results

Taflfélag Garðabæjar fórst mótahaldið vel og fóru keppendur, liðsstjórar og aðstandendur sáttir heim á leið.

- Auglýsing -