Vignir Vatnar Stefánsson gerði enn og aftur jafntefli við 2600+ stórmeistara og er enn í feykilega góðum málum á EM einstaklinga sem fram fer í Petrovac í Svartfjallalandi. Vignir gerði jafntefli gegn . Fyrir umferðina hafði Vignir 4 vinning og var efstur Íslendinga. Helgi Áss hafði 3,5 vinning en aðrir 3 vinninga.
Vignir hafði hvítt gegn Íslandsvininum, sterkasta skákmanni Svía, fyrrum aðstoðarmanni Carlsen og Reykjavíkurskákmótsmeistaranum (2023) sjálfum Nils Grandelius. Upp kom broddgaltarstaða, traust staða hjá svörtum sem gefur eftir rými en hefur dýnamíska möguleika ef hvítur fer eitthvað að þenja sig. Vignir var hinsvegar ekkert að þenja sig, setti eiginlega pressuna á Nils að reyna eitthvað ef hann vildi en Nils taldi það ekki vænlegt. Jafntefli var samið skömmu eftir að tímamörkunum var náð. Enn ein traust skákin hjá Vigni gegn 2600+ skákmönnum á þessu móti.
Helgi Áss lagði mikið undir með svörtu mönnunum gegn stigalægri andstæðingi frá Armeníu. Helgi tók stöðulegar áhættur en þær báru ávöxt þegar hann náði að komast skiptamun yfir í endatafl.
Svo bregðast krosstré sem önnur og Helga varð á í úrvinnslunni.
53…Hb6?? leyfði 54.Bf3! Hf6 55.Bxd5 og hið mikilvæg d-peð fellur bótalaust. 53…d4! hefði átt að duga til vinnings. Jafntefli virtist óumflýjanlegt en Helgi fékk tvo sénsa í lokin sem hann missti af og grátlegt jafntefli því niðurstaðan.
Hannes varð að gera sér jafntefli að góðu gegn búlgörskum FIDE meistara. Skákin var baráttuskák en Hannes virtist aldrei fá úr nógu að moða til að búa til nægjanlega stór vandamál fyrir andstæðing sinn sem varðist vel með svörtu.
Guðmundur tefldi Sikileyjarvörn af krafti gegn stigalægri andstæðingi, gaman að sjá hann gera það! Guðmundur hafði hrók og peð gegn tveimur léttum mönnum í endataflinu en náði að búa til hættulegt kantfrípeð sem réði úrslitum í þessari skák.
Aleksandr lenti í Tyrkja sem var í miklu sóknastuði og hreinlega óð á okkar mann og klossmátaði hann allt að. Erfitt tap hjá Sasha.
Quparadze-vaktin
Georgíumaðurinn Giga Quparadze vakti athygli nokkurra árvökulla íslenskra skákmanna á Evrópumóti einstaklinga 2021. Quparadze notar nánast engan tíma á kappskákir og er iðullega með meiri tíma á klukkunni en þegar skákin hefst. Sasha fékk að kenna á því í 6. umferð.
Í umferð dagsins hafði Giga 1:40 á klukkunni áður en hann eyddi tæpum 2 mínútum í síðasta leik sinn. Það er líkt og Georgíumaðurinn sé í keppni við sjálfan sig að safna tíma. Í þetta skiptið hafði skákina reyndar öll teflst áður fram í allavega 25. leik og mögulega var Quparadze bara svona vel undirbúinn þessar tvær umferðir!? Engu að síður hlýtur það að stuða menn þegar andstæðingurinn leikur nánast alltaf „spontant“ eins og menn kalla það.
Úrslit umferðarinnar
Gott jafntefli hjá Vigni og heilt yfir þokkalega umferð en oft getur reynst erfitt að knésetja minni spámennina. Vignir hefur nú 4,5 vinning í 47-102. sæti, Helgi hefur 4 vinninga ásamt Guðmundi á meðan að Hannes hefur 3,5 vinning en Aleksandr 3 vinninga.
Serbinn sókndjarfi Alexander Indjic er efstur á mótinu með 6,5 vinning af 7 og heilan vinning í forskot sem er ótrúlegt á jafn þéttu móti!
Pörun í 8. umferð
Í áttundu umferð sem fram fer á morgun hefur Vignir svart gegn stigalægri skákmanni. Hópurinn farinn að þéttast og „minni spámenn“ nálgast hópinn sem var að „pulsa sig saman“ í og við toppinn. Ef Vignir ætlar sér risastóra hluti á þessu móti þá er þetta skák sem Vignir þarf að vinna. Andstæðingurinn hinsvegar væntanlega efnilegur Armeni. Helgi Áss mætir þýskum landsliðsmanni en aðrir tefla niðurfyrir sig…eina leiðin til að losna við slík örlög er að vinna sínar skákir sem okkar menn gera vonandi á morgun!
Skákir hefjast 14:00 að íslenskum tíma (14:15 með delay). Teflt er á hverjum degi frá og með föstudeginum (eftir frídaginn).
Flestir af sterkustu virku skákmönnum þjóðarinnar taka þátt að þessu sinni. Íslensku keppendurnir eru:
Vignir Vatnar Stefánsson (2530) nr. 86
Hannes Hlífar Stefánsson (2485) nr. 116
Guðmundur Kjartansson (2470) nr. 122
Helgi Áss Grétarsson (2441) nr. 139
Aleksandr Domalchuk-Jonsson (2399) nr. 183


















