Blikarnir þrír áttu heilt yfir góðan gamlársdag í Hastings en tvöföld umferð fór fram í gær. Fyrir umferðina höfðu Vignir Vatnar og Davíð Kolka 3 vinninga af 4 en Benedikt Briem hafði tvo vinninga.

umferð fer fram á morgun og þar hefur , Davíð hefur hvítt gegn Eimils Steinars (2209) frá Lettlandi en Benedikt svart gegn CM Kendrick Zhang (1979).

Í fyrri skákinni hafði Vignir svart gegn FM Baptise Roux (2338). Beitti Vignir „íslenska-Philidornum“ og í miðtaflinu gaf sá franski sig full mikið á vald biskupapars Vignis og Vignir náði að yfirspila andstæðing sinn.

Davíð Kolka tapaði sinni annarri skák í röð eftir frábæra byrjun á mótinu. Tapið var í raun óþarfi. Davíð hafði trausta stöðu og betra tafl en gaf eftir vald á d1 reitnum í miðtaflinu sem kostaði hreinlega skákina.

Benedikt lagði ástralskann Cheerios-pakka CM að velli. Zhang með hvítt fann ekkert plan alla skákina, tróð öllum peðunum á sömu hvítu reitina og beið rólegur eftir að vera slátrað á svörtu reitunum. Auðvelt hjá Benna.

Vignir gerði tiltölulega stutt jafntefli í 5. umferð. Norski alþjóðlegi meistarinn Vestby-Ellingsen bryddaði upp á línu gegn Catalan sem teóríuhesturinn Ntirlis hefur stungið upp á á samfélagsmiðlum. Vignir sættist á skiptan hlut í jöfnu tafli.

Davíð rétti aftur úr kútnum í fimmtu umferð. Staða FIDE meistarans Badasconyi hrundi í miðtaflinu þegar hann gætti ekki að virkni þungu manna Davíðs sem tók að plokka af honum peð og vann skákina.

Benedikt Briem stimplaði sig svo loks inn í mótið með almennilegum sigri eftir ágætis stíganda þegar liðið hefur á mótið. Benedikt lagði alþjóðlega meistarann Mahel Boyer að velli. Sókn Boyer í lokin var hálf kjánaleg og mætti helst líkjast við „hope-chess“. Líklegast stafaði það af því að Boyer hafði einfaldlega verið stöðulega yfirspilaður!

Vignir hefur 4,5 vinning eftir umferðirnar 6 og er taplaus en Benedikt og Davíð hafa báðir 4 vinninga. Sjöunda umferðin er í dag á nýársdag en þar hefur Vignir svart gegn GM Laurent Pierre-Paoli (2559), Davíð hefur hvítt gegn GM Eldar Gasanov (2476) og Benedikt svart gegn Yang-Fan Zhou (2424)…sterkir andstæðingar á nýju ári!

- Auglýsing -