Sjöunda umferð í úrvalsdeildinni á Íslandsmót skákfélaga hófst núna kl. 19. Allar aðrar deildir hefja taflmennsku á morgun í Rimaskóla, Rósarima 11. Mikið er undir í umferðinni, hörkubarátta á toppi og botni í tvískiptri deild.
KR-ingar leiða með 9 stigum ásamt Fjölnismönnum en nú eru Eyjamenn komnir í 8 stig og narta í toppinn. Fjölnir og Eyjamenn mætast einmitt í sjöundu umferðinni.
TR-ingar eru ennneðstir en náðu sér í lífsnauðsynlegan sigur með minnsta mun gegn Víkingaklúbbnum. Víking og Breiðablik mætast innbyrðis og líklegt að sigurvegari þeirrar viðureignar fari langleiðina með að bjarga sér frá falli.
Staðan

Beinar útsendingar (þó með 15 mínútna seinkun) hefjast kl. 19:15.
Borðaparanir:

- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar
- Chess-Results
- Skáklög Skáksambands Íslands (12. grein)
- Reglugerð um Íslandsmót skákfélaga
- Auglýsing -

















