Aleksandr Domalchuk-Jonasson (Sasha) teflir nú á opnu móti á Ítalíu 13th Festival Città di Palmanova. Um er að ræða opið mót með 64 keppendum og er okkar maður númer 8 í stigaröðinni.

Umferð var á dagskrá í gær, gamlársdag, og í dag, nýársdag. Aleksandr gerði jafntefli í fyrra en vann núna í ár 😉

Í umferð morgundagsins mætti Aleksandr Ítalanum Leonardo Maglioni (1971) og hafði svart. Sasha hræðri vel upp í taflinu með svörtu og fórnaði manni fyrir hættuleg frípeð. Sá ítalski tefldi vörnina vel og gaf engin hættuleg færi á sér og fórnaði manninum til baka og slapp úr taphættu. Jafntefli niðurstaðan.

Skák dagsins, fyrsta skák ársins, er vonandi fyrirheit um gott ár hjá Aleksandr. Sasha hefur átt góð mót en vantað stöðugleika til að hækka elóstigin vel yfir 2400. Það ætti að koma á árinu 2025 með áframhaldandi taflmennsku og vinnu.

Sigur vannst í dag, Sasha tefldi til sigurs með svörtu og hékk á umframpeði og náði sér í þægilegan og góðan sigur sem þó var ekki mótþróalaus!

Sasha hefur 4,5 vinninga af 7 mögulegum þegar tvær umferðir eru eftir. Nú er bara að klára mótið með stæl og gera 2025 að góðu ári!

- Auglýsing -