Aðeins fjórar skákir voru tefldar í 2. umferð í gærkvöldi. Bæði komu til yfirsetur og hin margfræga ekkjufrú Skotta (sem gerir jafntefli í sínum skákum í þessu móti), auk þess sem einn keppandi forfallaðist á síðustu stundu og mætti því ekki til leiks.

Af hinum tefldu skákum er það helst að frétta að báran var stigin afar þunglega í skák Smára og Sigurðar. Sá síðarnefndi setti snemma upp ísfirskan biskup á b7 sem virtist óviðráðanlegur, jafnvel fyrir marghertan leigubílstjóra. Þvældist sá eyfirski um hríð í aðeins lakari stöðu og brátt ruddust hinir þungu menn Sigurðar með hjálp af biskupnum inn á kóngsstöðu taxidræversins úr Staðarbyggðinni. En kóngur hans slapp á hlaupum suður allan fjörð og nú fóru ísfirsku kallarnir að grípa í tómt. Snörist þá taflið við og Smári (sá eyfirski) virtist hafa taflið í hendi sér. En þegar honum förlaðist náði ísfirski guðsmaðurinn aftur að láta til sín taka og um síðir fundu menn ekki önnur ráð en að þrátefla. Stóðu þá báðir laklega eins og stundum er sagt.  Stóð þessi skák lengst allra og var stórbrotin.
Sigþór missté sig snemma í skákinni við Markús og mátti gefa mann í upphafi miðtafls. Eftir það var ekki að sökum að spyrja og Akureyrarmeistarinn knúði fram sigur af öryggi þótt það tæki sinn tíma.
Stefán átti harma að hefna gegn Benedikt frá því í boðsmótinu. Hér mættust því aftur fulltrúar hinna merku þveráa Eyjafjarðardala (Munka- og Bægis-); miklir andans menn sem draga dám af sínum fæðingarstöðum. Enda bar taflmennskan andríki þeirra greinilegan vott. Báðir tefldu af krafti, en skyndilega skellti svört munkadrottning (ekki nunna samt) sér inn í Bægisárstöðuna og svo fylgdu tveir hrókar. Þegar öðrum þeirra var fórnað og hinn bjó sig undir sömu örlög var Paradísarmissir Benedikts fullkomnaður og hann mátti gefast upp. Var þá hefnt fyrir umrætt tap á boðsmótinu.
Af Kussungsstaðaætt var svo mættur Valur Darri (stundum nefndur Val-dari) og atti kappi við hálfnafna siðbótarklerksins alkunna, Eymund Lúther. Sá fyrrnefndi tefldi hvasst með hvítu mönnunum og fórnaði peði snemma tafls. Lúther svaraði því af yfirvegun og gætti þess að veikja ekki stöðu sína. Upp kom endatafl þar sem svartur (E. Lúther) hafi klárt frumkvæði og hættulegan frelsingja, en Kussungstaðakappinn kunni sína lexíu (virkja kónginn!) og þegar þjóðhöfðinginn kom á vettvang voru dagar frelsingjans taldir. Þá bauð Eymundur jafntefli sem var þegið.

Smári-Sigurður       1/2
Benedikt-Stefán      0-1
Valur Darri-Eymundur  1/2
Sigþór-Markús        0-1
Goði-Karl            0-1 (hvítur mætti ekki)

Stefán því einn efstur með fullt hús að tveimur umferðum loknum, en Smári, Sigurður og Karl hafa einn og hálfan. Aðrir hafa færri vinninga.
Næst verður teflt á sunnudag.

Þá eigast þessir við:
Sigurður og Stefán
Karl og Smári
Markús og Valur
Eymundur og Benedikt
Björgvin og Baldur
Goði og Sigþór
Tobias situr yfir

Chess-results.com

- Auglýsing -