Þriðja umferð á Skákþingi Reykjavíkur sem lauk í gærkvöldi var heldur betur fjörug. Mikið var um sviptingar og óvænt úrslit en að lokinni þriðju umferð eru það þrír ungir Blikar sem raða sér í efstu sætin með fullt hús en það eru þeir Vignir Vatnar, Birkir Ísak og tvíburarnir Bárður og Björn Birkissynir.

Vignir tefldi með stöku peði í miðtaflinu en náði í staðinn í biskupaparið. Snemma í miðtaflinu er Vignir klárlega með gott frumkvæði en Oliver gaf ekkert eftir og endaði á að komast í endtafl.

Endataflið var lengi vel jafnt en eins og á fleiri borðum lenti riddarinn í vandræðum gegn biskupi og kantpeði seint í endataflinu. Vignir missti af nokkrum færum en endaði á að nýta sér sína sénsa í lokin og náði í góðan seiglusigur.
Annað endatafl þar sem biskup og h-peð voru til vandræða var á 2. borði. Hilmir Freyr tefldi uppskiptaafbrigðið í Spánverjanum. Hilmir virtist vera að byggja upp vænlegt endatafl með valdað frípeð á e-línunni. Birkir varðist hinsvegar vel og það var ekki auðvelt að bæta hvítu stöðuna. Hilmir lagði mikið á stöðuna og á endanum missti hann tökin og teygði sig of langt og Birkir náði vinningnum.

Bárður náði snemma þægilegri pressu á stakt peð Magnúsar Pálma eftir vel heppnaða byrjun á svart. Bárður vann svo peðið og náði að pressa þægilegt endtafl peði yfir til sigurs, vel útfærð skák.

Ingvar náði að trikka Björn í byrjuninni og vann skiptamun eftir hinn eðlilega 16…Hfd8?
Eftir 17.Df4 er svartur skyndilega í vandræðum. Peðið á f7 hangir og bæði Hf8 til baka og 17…Bf6 er svarað með 18.Rd7! og gaffallinn vinnur skiptamun. Svartur fékk peðið á d4 í bætur og Björn hefur mögulega mætt á fyrirlestur Vignis Vatnars á dögunum því hann varðist vel.
Greinarhöfundur fann ekki leið inn í svörtu stöðuna og líklegast var 34.Hd8! í stað 34.Ha1 leiðin til vinnings þar sem hvíti hrókurinn ætti á endanum að komast inn í stöðuna í gegnum c- eða d-línuna. Hvítur hefði átt að sættast á jafntefli en undirritaður var klár í smá gambl, vogun vinnur/vogun tapar og að þessu sinni var það tap.
Gauti Páll lagði allt undir snemma í sóknarfæri gegn Símoni en sóknin fjaraði jafnt og þétt út og liðsmunurinn taldi.
Ungir skákmenn fá dýrmæta keppnisreynslu á mótum eins og Skákþingi Reykjavíkur. Hinn ungi og efnilegi Jakob Steinn Valdimarsson á vafalítið framtíðina fyrir sér en fékk dýrmæta lexíu þegar hinn reynslumikli Jóhann Ragnarsson náði skólabókarfórn „Grísku gjöfuinni“

12.Bxh7+! er fórn sem allir skákmenn eiga að tileinka sér. Framhaldið varð 12…Kxh7 13.Rg5+ Kg8 14.Dh5+ He8 15.Dxf7+ Kh8 16.Dh5+ Kg8 17.Dh7+ Kf8 18.Dh8+ Ke7 19.Dxg7# lærdómsríkt!
Í 4.umferð fer fram á sunnudaginn mætast eftirfarandi á efstu borðum:
Vignir hefur hvítt gegn Bárði
Birkir Ísak hefur hvítt gegn Mikael Jóhanni
Björn Hólm þurfti að taka hjásetu þar sem hann tekur þátt á alþjóðlegu móti í Færeyjum eins og reyndar fleiri keppendur á SÞR.
Fleiri myndir frá Unu Strand:





















