Alþjóðlegu meistararnir Dagur Ragnarsson og Aleksandr Domalchuk-Jonasson hófu í gær leik á alþjóðlegu móti í New York. Báðir unnu þeir sigur í sinni fyrstu skák í gær en mótið er flokkaskipt og tefla þeir í sama IM flokknum en IM flokkarnir eru tveir og einn GM flokkur.
Dagur og Aleksandr eru báðir titilhafarnir í flokknum ásamt stórmeistaranum gamalreynda Leonid Yudasin. Aðrir keppendur eru því að keppast við að ná áföngum að alþjóðlegum meistaratitli en Dagur og Aleksandr munu líklegast lítið hjálpa til þar og plokka stig af vonarstjörnunum!
Dagur hafði svart í fyrstu umferð gegn heimamanninum Luc Hoffman (2130). Upp kom fjögurra riddara tafl, róleg byrjun en smátt og smátt fór hvítur að koma mönnum sínum klaufalega fyrir og Dagur stýrði biskupaparinu vel. Bronstein sagði að biskuparnir væru góðir og Dagur sýndi það!

Sasha þurfti að hafa aðeins meira fyrir sínum sigri. Hann hafði líka svart og líkt og Dagur fékk hann biskupaparið og þægilega stöðu gegn WIM Iris Mou (2183). Einhversstaðar missti svartur þráðinn og varð að sætta sig við aðeins betra endatafl með hrók og biskup gegn hrók og riddara en Aleksandr náði loks að skipta í unnið hróksendatafl eftir lélegan leik hjá hvítum.
Í dag og kvöld verða svo tefldar tvær skákir, tvöföld umferð!
- Mótið á chess-results
- Mótið á lichess (velja IM-D flokk)















