NM ungmenna fer fram við frábærar aðstæður í Borgarnesi í febrúar.

Norðurlandamót ungmenna fer fram um helgina á Hótel Borgarnesi. Mótið á sér mikla sögu en fyrsta mótið fór fram árið 1979! Mótið hefur farið fram árlega síðan þá. Meira að segja tókst að halda mótið árlega í gegnum heimsfaraldurinn 2020-21. Nánast allir sterkustu skákmenn landsins sem ekki eru gjaldgengir í 65+ landslið Íslands hafa teflt fyrir Íslands hönd á NM ungmenna í gegnum tíðina!

Norðurlandamót ungmenna er teflt í fimm aldursflokkum og eiga norðurlandaþjóðirnar að jafnaði tvo fulltrúa í hverjum flokki. Ísland á tólf fulltrúa á mótinu að þessu sinni. Við fáum tvo auka keppendur í tvo flokka þar sem stendur á stöku.

Umferðir hefjast kl. 10 og 16 föstudag til sunnudags.

Fulltrúar Íslands á mótinu verða:

A-flokkur (18-20 ára):
IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2370)
Benedikt Briem (2193)
Benedikt Þórisson (2088)

B-flokkur (16-17 ára):
Markús Orri Óskarsson (2025)
Mikael Bjarki Heiðarsson (1937)

C-flokkur (14-15 ára):
Jósef Omarsson (1950)
Sigurður Páll Guðnýjarson (1909)

D-flokkur (12-13 ára):
Birkir Hallmundarson (1890)
Örvar Hólm Brynjarsson (1723)
Emilía Embla B. Berglindardóttir (1669)

E-flokkur (10-11 ára):
Haukur Víðis Leósson (1745)
Pétur Úlfar Ernisson (1619)

Markús Orri, Emilía Embla, Haukur Víðs og Pétur Úlfar eru að tefla í fyrsta sinn á NM ungmenna.

Þjálfarar íslenska hópsins eru Björn Ívar Karlsson og Vignir Vatnar Stefánsson.

Vel verður fylgst með mótinu um helgina. Beinar útsendingar (með seinkun!) og daglegar fréttir á skak.is.

Heimasíða mótsins
Chess-results

- Auglýsing -