Alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson var eini Íslendingurinn sem náði sér í Norðurlandameistaratitil um helgina í Borgarnesi. Efsti flokkurinn var eini flokkurinn þar sem Íslendingar komust á pall en Benedikt Briem nældi sér í brons í sama flokki. Finnar voru ótrúleg sigurstranglegir, unnu tvo flokka og fengu alls sex verðlaunapeninga í í flokkunum fimm. Finnar fóru heim með yfir 500 elóstig í farteskinu, vafalítið besta Norðurlandamót Finna í ungmennaflokki frá upphafi!
Kíkjum á aldursflokkana
A-flokkur U20

Aleksandr Domalchuk-Jonasson var efstur fyrir lokadaginn og kláraði sitt með stæl og endaði efstur með 5,5 vinning. Luitjen Apol Axelsson frá Færeyjum var sá eini sem veitti honum keppni.
Sasha náði að spara orkuna vel með stuttum sigri í 5. umferð sem hjálpaði til.
Eftir slakan leik í byrjun kom 14…Rc2! hjá Sasaha sem leiðir til hámarksrefsingar fyrir hvítt! Skákin á c5 er illviðráðanleg og riddarinn lúrir á c2 eins og sást í skákinni!
Luijten átti séns fram í síðustu umferð en það leit ekki út fyrir að hann myndi nýta það framan af skák!
11.Bc5! neyddi Luijten til þess að fórna drottningu en hann vann sig aftur inn í skákina og setti smá pressu á Sasha.
Aleksandr kláraði hinsvegar sitt og því sigurvegari. Benedikt Briem eins og áður sagði í 3. sæti eftir sigur í lokaumferðinni og endaði með 4 vinninga. Aleksandr og Benedikt Briem hækka lítillega á stigum. Benedikt Þórisson átti slæman seinni hálfleik móts og er líklegast ekki fullkomlega sáttur þrátt fyrir fína spretti á milli.

B-flokkur U17
B-flokkurinn var nokkuð spennandi og réðist á oddastigum. Finninn Aku Salonen tefldi vel gegn Norðmanninum William Olsen í 5. umferðinni og var þetta úrslitaskákin í flokknum.
Íslensku strákarnir fengu 2,5 vinning og enduðu í 8-9. sæti. Markús Orri byrjaði vel en fataðist eilítið flugið seinni part móts. Mikael Bjarki á móti byrjaði illa en bjargaði mótinu með tveimur sigrum í röð seinni part móts. Báðir eiga inni!

C-flokkur U15
Fimmta umferðin reyndist einnig mikilvæg í C-flokki. Finninn Eli Asikainen hafði óvænt setið í efsta sæti en stigahæsti keppandinn Norðmaðurinn Evsuld Myagmasuren. Þurfti nauðsynlega á sigri að halda gegn honum með svörtu.

Mótið réðst á mistökum Finnans.
Má segja að 35.c4?? hafi verið grátleg mistök þar sem 35.Ke3 er einfalt jafntefli. Þessi leikur gæti birst í martröðum Finnans næstu vikur!
Josef Omarsson fékk 3 vinninga og tapaði 5 stigum en Sigurður Páll 2,5 vinning og tapar um 20 stigum. Báðir geta betur og vantaði bæði smá stríðslukku og slagkraft til að gera miðlungsmót að góðu móti.

D-group U13
Enn einn flokkurinn réðist á úrslitaskák í 5. umferð. Finninn Radmir Vorobyov hafði verið oddafiskur lengst af en varð að lúta í dúk gegn Norðmanninum Isai Sivaparan.

Norðmaðurinn stýrði úrslitaskákinni í unnið peðsendatafl.
Hvítur náði að einfalda taflið 42.Nxg6! Rxe5 43.Rxe5 Rxe5 44.Nxe5+ Ke6 og svo 45.Nxc4 og hvítur vann auðveldlega.
Íslensku keppendurnir: Birkir, Örvar og Emilía töpuðu allir stigum í þessum flokki og voru ekki nægjanlega nálægt sínu besta til að keppa um verðlaun að þessu sinni. Emilía sýndi fínan karakter með því að klára vel á lokakeppnisdegi!

E-flokkur U11
E-flokkuinn bauð upp á enn einn fljúgandi Finna. Zhang Yiming leyfði aðeins eitt jafntefli og það í lokaumferðinni og vann því örugglega með 5,5 vinning.
Íslensku strákarnir Pétur Úlfar og Haukur Víðis stóð sig heilt yfir vel. Pétur vantaði smá stríðsgæfu og tapar örfáum stigum en Haukur náði sér í um 65 elóstig og endaði í 4. sæti með 3,5 vinning.

Allar myndir voru teknar af Norðmanninum Thor Kvakkestad sem fær þakkir fyrir!
Hér er Myndaalbúm mótsins















