Stórglæsilegt 20 ára Afmælismót skákfélagsins Goðans 2025 hófst í kvöld með fyrstu umferð. Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir sveitarstjóri Þingeyjarsveitar lék fyrsta leiknum í skák stórmeistarans Simon Williams (stigahæsta keppanda mótsins) gegn landsliðskonunni Hallgerði Helgu Þorsteinsdóttur. Fljótlega eftir það hófst taflmennskan og þótt að sá stigahærri hafi haft betur á öllum borðum skullu nokkrar hurðir nærri hælum!

Fyrsta skákin til að klárast á mótinu var sigurskák Björns Þorfinnssonar gegn Sigurður Eiríkssyni. Björn er nokkuð rútíneraður í „pýramída-systeminu“ sínu og hefur unnið ófáar sóknarskákirnar með þessu byrjanakerfi.

Simon og Hallgerður

Á efsta borði náði Simon Williams snörpum sóknarsigri eins og honum er nánast einum lagið.

32.He8+! voru snotur tafllok.

Á efstu borðum náðu Þröstur og Bragi í nokkuð hreinlega sigra þó þeir hefðu þurft að hafa mismikið fyrir þeim. Á þriðja borði var gjörsamlega kveikt í borðinu í gríðarlega tvísýnni skák Hilmis Freys gegn Birki Hallmundarsyni.

Birkir í þungum þönkum í skákinni

Birkir náði flottri stungu með svörtu í 20. leik

20…Rg4! og Hilmir var algjörlega í köðlunum. Birkir náði ekki að fylgja eftir með bestu leikjunum í flókinni stöðu, það flókinni að í næstu leikjum skipti skákin um eigendur þar til Birkir var sleginn skákblindu í tímahraki í stöðu sem var líklegast enn aðeins betri á hann. Hilmir slapp þarna vel!

Allar skákir unnust semsagt stigahærri skákmanninum í vil. Adam Ferenc Gulyas stóð lengi vel gríðarlega vel í Bárði Erni en lék svo af sér skiptamun í tímahraki í einni lengstu skák umferðarinnar.

Kíkjum á nokkur skemmtileg tilþrif á öðrum borðum:

Símon Þórhallsson fann falleg tafllok gegn Lárusi H. Bjarnasyni.

21…Bd4+ nýtir sér klaufalega staðsetningu hvíta kóngsins og hvítu drottningarinnar. Hér væri 22.cxd4 svarað með 22…Dxd4+ og svo …Re5+ og drottningin á c2 fellur. Lárus reyndi því 22.Kf3 en eftir 22…Rce5+ samt 23.fxe5 Hxc3 gafst hvítur upp.

Stefán Steingrímur Bergsson þurfti að svitna gegn Ævari Ákasyni.

Hér hefði 14…d5!! verið gríðarlega öflug stunga. Hvítur getur ekki tekið með framhjáhlaupi þar sem þá væri riddarinn á d5 oní og svartur svarar drottningarleikjum með annaðhvort drápi á b2 eða með leiknum …d4 með mun betra tafli í bæði skiptin.  Eftir 14…Bxb2? eins og í skákinni hefði 15.Bd3! verið besta framhaldið en Stefán gaf annan séns á stungunni 15.Hb1? Bc3? (15…d5!!) og nú eftir 16.Bd3 komst Stefán á beinu brautina.

Önnur norðlensk stunga var möguleg í skák Hilmars Freys Birgissonar (sem hefur slegið í gegn sem tvífari Simon Williams) og Arnars Milutins Heiðarssonar.

Síðasti leikur Arnars 14…Be4?? var skelfilegur. Hvítur á hér 15.Hxe4! Hxe4 16.Re5 og getur svarað 16…Hxe3 með 17.Ba8 og hrókurinn á e3 á enga reiti og hvítur hefur gjörunnið tafl! Hilmar lék 15.h4 og skákin hélt áfram en Arnar slapp þarna sannarlega með skrekkinn!

Mótið heldur áfram á morgun, föstudag með tveimur umferðum.

Styrktaraðilar Afmælismóts Goðans 2025

Þingeyjarsveit
Sel-Hótel Mývatn
Landsvirkjun
Sparisjóður Suður Þingeyinga
Framsýn

Jarðböðin
HSÞ
GPG

- Auglýsing -